„Binni í Gröf“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
mEkkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(33 millibreytingar ekki sýndar frá 9 notendum)
Lína 1: Lína 1:
'''Benóný Friðriksson''' (7. janúar 1904 12. maí 1972), betur þekktur sem '''Binni í Gröf''', var landsfrægur aflamaður.  Hann fæddist í [[Um Vestmannaeyjar|Vestmannaeyjum]] og var sonur formannsins Friðriks Benónýssonar og Oddnýjar Benediktsdóttur.
[[Mynd:Binni2.jpg|thumb|300px|Binni í Gröf]]
'''Benóný Friðriksson''' var fæddur 7. janúar 1904 og hann lést 12. maí 1972. Benóný var betur þekktur sem '''Binni í Gröf''' og var hann landsfrægur aflamaður.  Hann fæddist í [[Um Vestmannaeyjar|Vestmannaeyjum]] og var sonur formannsins [[Friðrik Benónýsson (Gröf)|Friðriks Benónýssonar]] og [[Oddný Benediktsdóttir (Gröf)|Oddnýjar Benediktsdóttur]]. Eiginkona Binna var [[Katrín Sigurðardóttir (Sóleyjarhlíð)|Sigríður Katrín Sigurðardóttir]] og áttu þau saman 7 börn.  


Binni gerðist með afbrigðum góður sjó- og aflamaður, einhver mesti sem við Vestmannaeyjar hefur fiskað. Binni réri fyrstu vertíðar sínar með vélbátnum m/b Nansen og var hann formaður á bátnum í forföllum Jóhanns á Brekku. Árið 1926 var honum boðið taka formennsku á vélbátnum m/b Gullu. Þar var hann starfandi þrjár vertíðir, síðan tók hann við bátnum Newcastle, og var svo með vélbátana m/b Gottu, m/b Heklu, m/b Gulltopp, e/s Sævar, m/b Þor og m/b Andvara. Eftir það keypti hann skipið m/b [[Gullborg VE|Gullborg]] og varð landsþekktur fyrir formennsku sína á þeim bát.
== Sjómennska ==
Alveg frá upphafi beindist hugur Binna að sjónum. Ekki var hann gamall þegar hann hóf að dorga í höfninni og eyddi hann góðum tíma af æsku sinni niðri á [[Vestmannaeyjahöfn|höfn]]. Ekki var hann fermdur þegar hann hóf róa. Það var á smáferju hjá [[Jakob Tranberg (Jakobshúsi)|Jakobi Tranberg]] og kom strax í ljós mikill áhugi og fiskisæld. Ásamt þremur vinum sínum hóf Binni formennsku á sexæring 15 ára gamall. Fiskuðu félagarnir mikið undir styrkri stjórn Binna.


Binni varð aflakóngur í Vestmannaeyjum árið 1954 og hélt þeim titli samfellt í 6 vertíðir, og fékk titilinn margoft til viðbótar yfir ævina.
Binni gerðist með afbrigðum góður sjó- og aflamaður, einhver mesti sem við Vestmannaeyjar hefur fiskað. Binni reri fyrstu vertíðir sínar á vélbát á m/b Nansen VE 102, 1920. Vélamaður þar 1921-1924 og var hann formaður á bátnum í forföllum Jóhanns á [[Brekka|Brekku]].  Árið 1926 var honum boðið að taka formennsku á vélbátnum m/b Gúllu. Þar var hann starfandi sjö vertíðir, síðan tók hann við bátnum Newcastle, og var svo með vélbátana m/b Gottu, Maunt Heklu, m/b Gulltopp, e/s Sævar VE 102,(var áður varðskip og hét Þór) og m/b Andvara. Eftir það keypti hann skipið m/b [[Gullborg VE|Gullborg]] 1954-1970 (ásamt Einari Sigurðssyni frá Heiði) og varð landsþekktur fyrir formennsku sína á þeim bát. Það var hans happaskip.  


Benóný hafði ávallt duglegri skipshöfn að stjórna enda samrýmdist hverskonar seinagangur og stirðleiki ekki skapi skipstjórans.
Binni varð aflakóngur í Vestmannaeyjum árið 1954 og hélt þeim titli samfellt í 6 vertíðir og fékk titilinn samtals sjö sinnum. Nokkrum sinnum varð hann hæstur yfir landið.
[[Mynd:AHOFNGU4.jpg|thumb|300px|Áhöfn Gullborgar Re 38 uppi á dekki
Skipshöfn Benónýs Friðrikssonar á Gullborgu. Sjá nánari uppýsingar með því að smella á myndina]]


Binni var sæmdur fálkaorðunni árið 1971 fyrir störf sín. Kona hans var Katrín Sigurðardóttir frá Þinghól í Hvolhreppi og áttu þau saman 8 börn.
Benóný var ávallt með úrvals mannskap enda samrýmdist hvers konar seinagangur og stirðleiki ekki skapi skipstjórans.
 
[[Óskar Kárason]] samdi formannavísu um Binna:
:''Hræðist aldrei hroða sjá
:''hraustur Grafar Binni.
:''Þundur fiskinn þykir sá,
:''það skal haft í minni.
 
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
:''Binni með sjómanns sinni,
:''svalur frá Gröf er talinn,
:''Friðriks arfi, þó iðan
:''ill vilji þiljur fylla,
:''Gullborgu létt á lullar
:''leiður ei þétt til veiða.
:''Æðstan kóng afla hæstan
:''Ísalands hann ég lýsi.
 
== Áhugamál og önnur afrek ==
Á yngri árum var Binni fimur með boltann, hann var einn af stofnendum  [[Knattspyrnufélagið Týr|Knattspyrnufélagsins Týs]] og keppti með þeim en hann var einnig í fremstu röð í fimleikum.  Önnur hreyfing var Binna hugleikin og eyddi hann góðum tíma í lundaveiði þó að tækifærin kæmu sjaldan. Hann hafði dálæti á vísum og kunni ógrynni af þeim ásamt því að kveðast á við félaga.
 
Binni var sæmdur fálkaorðunni árið 1971 fyrir störf sín.  
 
==Fjölskylda==
Eiginkona Binna var [[Katrín Sigurðardóttir (Sóleyjarhlíð)|Sigríður Katrín Sigurðardóttir]] (Fædd á Stórólfshvoli í Hvolhreppi, Rang. 26. maí 1909 og látin 28. júní 1979 frá Þinghól í Hvolhreppi) og áttu þau saman 7 börn.
* [[Sævar Benónýsson]] 1931 - 1982
:Skipstjóri, síðast bús. í Vestmannaeyjum.
* [[Jóna Sigríður Benónýsdóttir]] 1935 - 1984
:Síðast bús. í Keflavík.
* [[Sjöfn Benónýsdóttir|Sjöfn Kolbrún Benónýsdóttir]] 1937
* [[Oddný Jóhanna Benónýsdóttir]] 1939 - 1995
:Húsfreyja í Eyvindarmúla, Fljótshlíðarhr., Rang.
* [[Friðrik Benónýsson (yngri)|Friðrik Gissur Benónýsson]] 1941
* [[Benóný Benónýsson]] 1947
* [[Sigurður Grétar Benónýsson]] 1950
* [[Svanhildur Guðrún Benónýsdóttir]] 1951
 
== Myndir  ==
<Gallery>
Mynd:KG-mannamyndir 1418.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 10035.jpg
Mynd:Blik1976 johannes bls195.jpg
Mynd:Saga Vestm., E., I., 112ca.jpg
Mynd:Saga Vestm., E., I., 128g.jpg
Mynd:Saga Vestm., E., II., 64f.jpg
Mynd:Blik 1967 292.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 1408.jpg
Mynd:KG-mannamyndir 1514.jpg
</gallery>
 
 
{{Heimildir|
* Benóný Friðriksson. ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja''. 1972, bls. 46.
* Óskar Kárason. ''Formannavísur''. Vestmannaeyjum, 1950.
* Óskar Kárason. ''Formannavísur II''. Vestmannaeyjum, 1956.
* Íslendingabók. [http://www.islendingabok.is]
* Viðbætur við heimildir: Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum
}}
[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Aflakóngar]]
[[Flokkur:Týrarar]]

Núverandi breyting frá og með 31. janúar 2024 kl. 16:37

Binni í Gröf

Benóný Friðriksson var fæddur 7. janúar 1904 og hann lést 12. maí 1972. Benóný var betur þekktur sem Binni í Gröf og var hann landsfrægur aflamaður. Hann fæddist í Vestmannaeyjum og var sonur formannsins Friðriks Benónýssonar og Oddnýjar Benediktsdóttur. Eiginkona Binna var Sigríður Katrín Sigurðardóttir og áttu þau saman 7 börn.

Sjómennska

Alveg frá upphafi beindist hugur Binna að sjónum. Ekki var hann gamall þegar hann hóf að dorga í höfninni og eyddi hann góðum tíma af æsku sinni niðri á höfn. Ekki var hann fermdur þegar hann hóf að róa. Það var á smáferju hjá Jakobi Tranberg og kom strax í ljós mikill áhugi og fiskisæld. Ásamt þremur vinum sínum hóf Binni formennsku á sexæring 15 ára gamall. Fiskuðu félagarnir mikið undir styrkri stjórn Binna.

Binni gerðist með afbrigðum góður sjó- og aflamaður, einhver mesti sem við Vestmannaeyjar hefur fiskað. Binni reri fyrstu vertíðir sínar á vélbát á m/b Nansen VE 102, 1920. Vélamaður þar 1921-1924 og var hann formaður á bátnum í forföllum Jóhanns á Brekku. Árið 1926 var honum boðið að taka formennsku á vélbátnum m/b Gúllu. Þar var hann starfandi sjö vertíðir, síðan tók hann við bátnum Newcastle, og var svo með vélbátana m/b Gottu, Maunt Heklu, m/b Gulltopp, e/s Sævar VE 102,(var áður varðskip og hét Þór) og m/b Andvara. Eftir það keypti hann skipið m/b Gullborg 1954-1970 (ásamt Einari Sigurðssyni frá Heiði) og varð landsþekktur fyrir formennsku sína á þeim bát. Það var hans happaskip.

Binni varð aflakóngur í Vestmannaeyjum árið 1954 og hélt þeim titli samfellt í 6 vertíðir og fékk titilinn samtals sjö sinnum. Nokkrum sinnum varð hann hæstur yfir landið.

Áhöfn Gullborgar Re 38 uppi á dekki Skipshöfn Benónýs Friðrikssonar á Gullborgu. Sjá nánari uppýsingar með því að smella á myndina

Benóný var ávallt með úrvals mannskap enda samrýmdist hvers konar seinagangur og stirðleiki ekki skapi skipstjórans.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Binna:

Hræðist aldrei hroða sjá
hraustur Grafar Binni.
Þundur fiskinn þykir sá,
það skal haft í minni.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Binni með sjómanns sinni,
svalur frá Gröf er talinn,
Friðriks arfi, þó iðan
ill vilji þiljur fylla,
Gullborgu létt á lullar
leiður ei þétt til veiða.
Æðstan kóng afla hæstan
Ísalands hann ég lýsi.

Áhugamál og önnur afrek

Á yngri árum var Binni fimur með boltann, hann var einn af stofnendum Knattspyrnufélagsins Týs og keppti með þeim en hann var einnig í fremstu röð í fimleikum. Önnur hreyfing var Binna hugleikin og eyddi hann góðum tíma í lundaveiði þó að tækifærin kæmu sjaldan. Hann hafði dálæti á vísum og kunni ógrynni af þeim ásamt því að kveðast á við félaga.

Binni var sæmdur fálkaorðunni árið 1971 fyrir störf sín.

Fjölskylda

Eiginkona Binna var Sigríður Katrín Sigurðardóttir (Fædd á Stórólfshvoli í Hvolhreppi, Rang. 26. maí 1909 og látin 28. júní 1979 frá Þinghól í Hvolhreppi) og áttu þau saman 7 börn.

Skipstjóri, síðast bús. í Vestmannaeyjum.
Síðast bús. í Keflavík.
Húsfreyja í Eyvindarmúla, Fljótshlíðarhr., Rang.

Myndir



Heimildir

  • Benóný Friðriksson. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1972, bls. 46.
  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Íslendingabók. [1]
  • Viðbætur við heimildir: Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum