Sævar Benónýsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sævar í Gröf
Sævar í Gröf

Sævar Benónýsson fæddist 11. febrúar 1931 og lést 15. janúar 1981. Sævar var sonur Binna í Gröf og Katrínar Sigurðardóttur. Hann bjó framan af hjá foreldrum sínum á Hásteinsvegi 45.

Sævar var formaður á mótorbátnum Garðari, en hann byrjaði átján ára með hann.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Sævar:

Soninn Binna Sævar má
seggja tal í letra.
Yngstur fleyi siglir sá
sveinninn átján vetra.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.