„Örnefni“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (→‎Örnefnaferð um Eyjar: bara laga link í Sker.)
Lína 5: Lína 5:
Fólk sem kemur til Vestmannaeyja í fyrsta skiptið, hvort heldur er með flugi eða [[Herjólfur|Herjólfi]], tekur líklegast fyrst eftir [[Einidrangur|Einidrangi]], sem stendur einn og sér úti í hafi. Miðja vegu milli Einidrangs og Heimaeyjar má finna [[Þrídrangar|Þrídranga]], sem eru í raun fjórir talsins; Stóridrangur (öðru nafni Háidrangur), Þúfudrangur og Klofadrangur. Fjórði drangurinn, sem sést ekki frá Heimaey, er líklega nafnlaus.  
Fólk sem kemur til Vestmannaeyja í fyrsta skiptið, hvort heldur er með flugi eða [[Herjólfur|Herjólfi]], tekur líklegast fyrst eftir [[Einidrangur|Einidrangi]], sem stendur einn og sér úti í hafi. Miðja vegu milli Einidrangs og Heimaeyjar má finna [[Þrídrangar|Þrídranga]], sem eru í raun fjórir talsins; Stóridrangur (öðru nafni Háidrangur), Þúfudrangur og Klofadrangur. Fjórði drangurinn, sem sést ekki frá Heimaey, er líklega nafnlaus.  


Þegar að komið er að Heimaey sjást [[Heimaklettur]], [[Miðklettur]] og [[Ystiklettur]] nyrst og austast á eynni. í Miðkletti má sjá [[Selhellir|Selhelli]], og [[Latur(sker)|Latur]] stendur þar hjá. [[Elliðaey]] stendur fyrir norðaustan Ystaklett, og [[Faxasker]] skýtur upp kollinum þar á milli. Sunnan við Elliðaey má sjá [[Bjarnarey]], en þær eru einu úteyjarnar sem eru austan við Heimaey.
Þegar að komið er að Heimaey sjást [[Heimaklettur]], [[Miðklettur]] og [[Ystiklettur]] nyrst og austast á eynni. í Miðkletti má sjá [[Selhellir|Selhelli]], og [[Latur (sker)|Latur]] stendur þar hjá. [[Elliðaey]] stendur fyrir norðaustan Ystaklett, og [[Faxasker]] skýtur upp kollinum þar á milli. Sunnan við Elliðaey má sjá [[Bjarnarey]], en þær eru einu úteyjarnar sem eru austan við Heimaey.


=== Höfnin ===
=== Höfnin ===

Útgáfa síðunnar 14. júní 2005 kl. 09:01

Húsið Skáli stóð við Austurveg. Það hét Litli-Hlaðbær og fór undir hraun 1973.

[[Flokkur:Hús]== Örnefnaferð um Eyjar == Mynd:Örnefnakort heimaey.PNG Fólk sem kemur til Vestmannaeyja í fyrsta skiptið, hvort heldur er með flugi eða Herjólfi, tekur líklegast fyrst eftir Einidrangi, sem stendur einn og sér úti í hafi. Miðja vegu milli Einidrangs og Heimaeyjar má finna Þrídranga, sem eru í raun fjórir talsins; Stóridrangur (öðru nafni Háidrangur), Þúfudrangur og Klofadrangur. Fjórði drangurinn, sem sést ekki frá Heimaey, er líklega nafnlaus.

Þegar að komið er að Heimaey sjást Heimaklettur, Miðklettur og Ystiklettur nyrst og austast á eynni. í Miðkletti má sjá Selhelli, og Latur stendur þar hjá. Elliðaey stendur fyrir norðaustan Ystaklett, og Faxasker skýtur upp kollinum þar á milli. Sunnan við Elliðaey má sjá Bjarnarey, en þær eru einu úteyjarnar sem eru austan við Heimaey.

Höfnin

Þegar siglt er um innsiglinguna Skansfjöruna að sjá sunnan megin, en Klettsvík norðan megin á milli fjallanna þriggja. Þegar farið er framhjá Hringskersgarður má sjá Stafkirkjuna á Skansinum fast upp við Nýja Hraunið, ásamt gamla Hervirkinu. í Heimakletti má sjá Hörgareyri.

Í Vestmannaeyjahöfn eru nokkrar bryggjur, t.d. Nausthamarsbryggja, Básaskersbryggja, Friðarhöfn, Binnabryggja.

Þegar að litið er til norðurs frá höfninni má sjá Þrælaeiði, en til vesturs eru Stóra-Klifið, Litla-Klif, Moldai og Háhá. Til austurs má sjá Nýja hraunið, og sunnan við það eru Eldfell og Helgafell.

Bærinn

Miðbær Vestmannaeyja er byggður á aflíðandi brekku sem kallað var Breiðholt áður fyrr, en Breiðholtsbraut heitir Vestmannabraut í dag, og var hún lengsta gata bæjarins fyrir gos. Götur í Vestmannaeyjabæ eru 66 talsins, og eru þær allar malbikaðar nema Reglubraut. Heiðarvegur og Skólavegur eru helstu göturnar sem ganga frá norðri til suðurs, en Strandvegur, Vestmannabraut og Kirkjuvegur þvera þær frá austri til vesturs. Kirkjuvegur sveigir niður til norðurs og gengur meðfram hrauninu niður að Sjómannasundi.

Fjallganga um norðurkletta

Þegar að gengið er meðfram Strandvegi til vesturs frá höfninni er fljótlega komið að Spröngunni. Þaðan er auðvelt að ganga upp á , og þaðan upp á Há-há og Molda. Áður fyrr tíðkaðist það að síga frá Molda niður í Fiskhella og þurrka þar fisk. Ef gengið er til norðurs á toppi Molda má komast út í Náttmálaskarð, en þaðan er greið leið um Eggjar yfir á Dalfjall. Á eggjum Dalfjalls eru krossgötur: Hægt er að halda til norðurs niður á Ufsaberg og þaðan niður í Stafsnes, eða til vesturs upp á Blátind, eða einfaldlega til suðurs, framhjá Saltabergi og niður ofan í Herjólfsdal.

Í miðjum Herjólfsdal er Tjörnin, en hún er tengd vatnsuppsprettu sem er sunnar í dalnum, nær Molda. Ef farið er vestur frá brunninum sem við vatnsuppsprettuna má sjá Gamla Golfskálann í suðri undir Fiskhellum. Þá er komið að landnámsbænum, þar sem talið er að Herjólfur Bárðarson hafi búið. Þá segir sagan um Vilborgu og Hrafnanna frá því þegar að byggð lagðist í eyði þar.

Meðfram hamrinum

Til vesturs yfir golfvöllinn má finna Kaplagjótu innundir Dalfjalli. Suður af Kaplagjótu er Mormónapollur þar sem að mormónar voru skírðir í stórum stíl um miðja 19. öld. Gengið er svo meðfram hamrinum til Suðurs, en þá er hægt að sjá á góðum degi út í úteyjarnar Álsey, Brand, Geirfuglasker, Suðurey, Surtsey og Súlnasker.