Sigurjón Bjarnason (Helgahjalli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. maí 2015 kl. 14:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. maí 2015 kl. 14:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigurjón Bjarnason (Helgahjalli)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Sigurjón Bjarnason frá Helgahjalli fæddist 1. febrúar 1872 og drukknaði 16. maí 1901.
Foreldrar hans voru Bjarni Þorsteinsson vinnumaður í Gvendarhúsi, f. 1. nóvember 1841, d. 6. september 1930, og kona hans Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, vinnukona, f. 2. júlí 1832, d. 2. janúar 1912.

Sigurjón var með foreldrum sínum í bernsku, en var sendur að Eystri-Skógum u. Eyjafjöllum 1879, tökubarn, til Guðrúnar Magnúsdóttur og Jóns Hjörleifssonar, og þar ólst hann upp, var þar „gustuka vegna“ 1880, vinnumaður þar 1890.
Hann fórst á leið til Eyja með Björgólfi í Beinakeldu við Klettsnef 1901. Þar drukknaði einnig Guðný systir hans.
Hann var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.