Þórður Einarsson (Vilborgarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. nóvember 2014 kl. 21:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. nóvember 2014 kl. 21:21 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þórður Einarsson sjómaður á Löndum, síðar sjávarbóndi á Vilborgarstöðum fæddist 4. október 1822 og lést 27. mars 1860.
Faðir Þórðar var Einar Einarsson bóndi í Presthúsum, d. 15. september 1833 af slysförum.

Móðir Þórðar var Anna Þorbjörnsdóttir húsfreyja, f. 1798 í Bakkahjáleigu í A-Landeyjum, d. 11. mars 1849.

Þórður var fósturbarn í Presthúsum 1835. Hann var kvæntur sjómaður á Löndum 1845. Þar var kona hans Ástríður Jónsdóttir, barn þeirra Ingibjörg 2 ára og móðir Þórðar, Anna Þorbjörnsdóttir. Við manntal 1850 var hann enn á Löndum. Móðir hans var látin (d. 1849), en mætt var Guðrún dóttir þeirra Ástríðar. Við manntal 1855 var Þórður sjávarbóndi á Vilborgarstöðum og Gróa þriggja ára hafði bæst í barnahópinn.
Þórður var ekki á manntali 1860, enda mun hann þá vera látinn samkv. SMJ.
Þórður var í Herfylkingunni og var undirforingi í henni 1859.

Kona Þórðar var Ástríður Jónsdóttir húsfreyja á Löndum og Vilborgarstöðum, f. 28. júlí 1825 í Mýrdal, d. 3. janúar 1904.
Börn Þórðar og Ástríðar voru:
1. Einar Þórðarson, f. 31. janúar 1843, d. 5. febrúar 1843.
2. Ingibjörg Þórðardóttir, f. 6. september 1844, d. 1. mars 1890.
3. Guðrún Þórðardóttir, f. 19. ágúst 1849, d. 12. júní 1921, húsfreyja í Vegg, kona Sigurðar Ólafssonar.
4. Gróa Þórðardóttir, f. 18. febrúar 1853, d. 19. janúar 1935, húsfreyja í Hólshúsi, kona Ingvars Árnasonar.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþj.bækur.
  • Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.