Einar Einarsson (Presthúsum)
Einar Einarsson bóndi fæddist 1796 og lést af slysförum 16. september 1833.
Einar var tómthúsmaður í Kastala 1821, varð bóndi á Steinsstöðum á sama ári, í Ólafshúsum 1822 og í Presthúsum 1823, lést 1833 af slysförum, „marðist undir skipi“.
Kona hans, (8. október 1820), var Anna Þorbjörnsdóttir húsfreyja, f. 1798, d. 11. mars 1849.
Börn þeirra hér:
1. Þorbjörn Einarsson, f. 9. október 1819 á Gjábakka, d. 15. október 1819 úr ginklofa.
2. Þorbjörg Einarsdóttir, f. 2. júlí 1821 í Kastala, d. 17. júlí 1821 úr ginklofa.
3. Þórður Einarsson sjómaður á Löndum, síðar sjávarbóndi á Vilborgarstöðum, f. 4. október 1822, d. 27. mars 1860.
4. Guðmundur Einarsson, f. í desember 1823 í Presthúsum, d. 7. desember 1823 úr „Barnaveiki“, líklega ginklofi.
5. Páll Einarsson, f. 27. mars 1825 í Presthúsum, d. 1. apríl 1825 úr „Barnaveiki“, líklega ginklofi.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.