Steinunn Oddsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. ágúst 2014 kl. 20:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. ágúst 2014 kl. 20:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Steinunn Oddsdóttir húsfreyja á Oddsstöðum fæddist 22. janúar 1824 á Stekkjarhjáleigu í Hálssókn í Hamarsfirði í S-Múlasýslu.
Foreldrar hennar voru Oddur bóndi í Stekkjarhjáleigu hjá Hálsi í Hamarsfirði, f. um 1768 í Borgargerði í Hálssókn, Gunnlaugs bónda í Búlandsnesi, f. um 1708 og konu Gunnlaugs, Málfríðar Einarsdóttur. Móðir Steinunnar og barnsmóðir Odds, (Steinunn var framhjátökubarn Odds bónda), var Jóhanna Ketilsdóttir, en móðir hennar var Katrín Jörundsdóttir, f. 1758.
Steinunn var gift vinnukona á Karlsstöðum í Berunessókn í S-Múl. 1845, gift Þorláki Vigfússyni. Hjá þeim var sonur þeirra Stefán Jóhannes.
Hún var húsfreyja á Kirkjubæ í Eyjum 1870 og á Oddsstöðum 1880.

I. Fyrri eiginmaður Steinunnar var Þorlákur Vigfússon vinnumaður á Karlsstöðum á Berufjarðarströnd 1845, f. 1805.
Barn þeirra var
1. Stefán Jóhannes, f. 1843, d. 1892.

II. Síðari maður hennar var Árni Þórarinsson, f. 1825, bóndi á Kirkjubæ í Eyjum 1870 og á Oddsstöðum 1880.
Árni og Steinunn bjuggu „alllengi að Hofi í Öræfum og fluttust síðar til Vestmannaeyja og bjuggu þar að Oddsstöðum.“ (Saga Ve.II.228). Árni og Steinunn létu háöldruð, komin yfir áttrætt, af búskap og fóru í hornið til dóttur sinnar í Frydendal.
Börn þeirra voru:
2. Oddur Árnason, f. 1851, d. 2. nóvember 1863.
3. Anna Sigríður, f. 4. júní 1855 í Geithellnasókn, S-Múl., d. 30. ágúst 1930. Hún var húsfreyja í Frydendal.
4. Þorgeir Árnason, f. 1858 í Heydalasókn, S-Múl., vinnumaður á Hnappavöllum í Öræfum og Vattarnesi við Reyðarfjörð 1890.
5. Sveinn (Skaftfell), f. 5. október 1859 á Hofi í Öræfum. Hann var vinnumaður í Nýborg, lærði trésmíði og stundaði hana á Djúpavogi og á Fáskrúðsfirði, fór til Vesturheims 1900.
6. Þorgerður, f. 1865. Hún var húsfreyja á Oddsstöðum 1901, fór til Vesturheims 1903 með Jóni Brandssyni manni sínum og þrem börnum.
7. Oddur, útgerðarmaður í Eyjum, f. 30. júní 1865, d. 8. ágúst 1898, faðir Árna Oddssonar á Burstafelli.


Heimildir