Guðni Þórðarson (Ljótarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. apríl 2014 kl. 12:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. apríl 2014 kl. 12:29 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðni Þórðarson bóndi, fæddist í Stóru-Hildisey í A-Landeyjum 7. júní 1854 og lézt á Ljótarstöðum þar 18. júlí 1910.
Foreldrar hans voru bóndahjónin í Stóru-Hildisey Margrét Jónsdóttir og Þórður Guðnason.
I. Barnsmóðir: Sigríður Sigurðardóttir, síðar húsfreyja í Lambhaga.
Barn þeirra var
1. Ólína Guðnadóttir, f. 9. apríl 1900, d. 22. febrúar 1922.
II. Kona, (8. október 1886), Guðrún Magnúsdóttir, f. 2. marz 1862, d. 27. apríl 1943.
Börn þeirra Guðrúnar voru:
2. Þorkell, f. 1885, d. 1885;
3. Guðný húsfreyja í Rvk, f. 1890, d. 1978;
4. Þórður skólastjóri í Hafnarfirði, f. 1892, d. 1923;
5. Árni Þorbjörn magister, f. 1896, d. 1973;
6. Marta hjúkrunarfræðingur í Rvk, f. 1899, d. 1947;
7. Guðbjörg Lilja starfsstúlka í Rvk, f. 1902, d. 1975.

Guðni og Guðrún bjuggu í Frydendal 1885-1887, í Götu 1887-1889, í Garðhúsum 1889-1895. Þá fluttu þau að Ljótarstöðum og bjuggu þar til 1910, er Guðni lézt. Guðrún bjó á jörðinni til ársins 1911, en flutti þá til Eyja að nýju og bjó þar til æviloka 1943.


Heimildir

  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.