Guðni Þórðarson (Ljótarstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðni Þórðarson bóndi, tómthúsmaður í Garðhúsi og víðar í Eyjum, fæddist í Stóru-Hildisey í A-Landeyjum 7. júní 1854 og lézt á Ljótarstöðum þar 18. júlí 1910.
Foreldrar hans voru Þórður Guðnason bóndi í Stóru-Hildisey og og formaður við Landeyjasand, f. 7. júní 1812 á Arnarhóli í V-Landeyjum, d. 14. júlí 1901 á Núpum í Ölfusi, og síðari kona hans Margrét Jónsdóttir húsfreyja og ljósmóðir, f. 24. júní 1821, d. 31. desember 1908 á Núpum.

Guðni og Guðrún fluttust til Eyja 1886 og bjuggu í Frydendal 1886-1887, í Götu 1887-1889, í Garðbæ, (líka nefnt Garðhús), 1889-1895. Þá tóku þau við búi foreldra Guðrúnar á Ljótarstöðum og bjuggu þar til 1910, er Guðni lézt.

I. Kona Guðna, (8. október 1885), var Guðrún Magnúsdóttir, f. 2. marz 1862, d. 27. apríl 1943.
Börn þeirra Guðrúnar voru:
1. Þorkell Guðnason, f. 28. október 1885, d. 29. október 1885.
2. Árni Guðnason, f. 5. janúar 1888 í Götu, d. 11. maí 1892.
3. Guðný Guðnadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 10. janúar 1890 í Garðhúsum, d. 1. október 1978.
4. Þórður Guðnason skólastjóri í Hafnarfirði, f. 12. mars 1892 í Garðhúsum, d. 1. júní 1923.
5. Árni Þorbjörn Guðnason magister, f. 31. janúar 1896, d. 15. maí 1973.
6. Marta Guðnadóttir hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, f. 1. mars 1899, d. 5. júní 1947.
7. Guðbjörg Lilja Guðnadóttir starfsstúlka í Reykjavík, f. 29. apríl 1902, d. 15. september 1975.

II. Barnsmóðir Guðna var Sigríður Sigurðardóttir frá Kúfhóli í A-Landeyjum, síðar húsfreyja í Lambhaga, f. 26. júlí 1874, d. 15. ágúst 1962.
Barn þeirra var
1. Ólína Guðnadóttir, f. 9. apríl 1900, d. 22. febrúar 1922.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.