Finnur Árnason (Steinsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. apríl 2014 kl. 22:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. apríl 2014 kl. 22:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Finnur Árnason''' sjómaður í Hólshúsi, síðan bóndi á Steinsstöðum, fæddist 17. nóvember 1821 í Garðakoti í Mýrdal og lést 8. mars 1882 í E...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Finnur Árnason sjómaður í Hólshúsi, síðan bóndi á Steinsstöðum, fæddist 17. nóvember 1821 í Garðakoti í Mýrdal og lést 8. mars 1882 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Árni Þórðarson bóndi, f. 8. mars 1787, d. 9. júlí 1837 og fyrri kona hans Guðrún Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 15. febrúar 1792, d. 15. nóvember 1830.

Árni og Guðrún foreldrar Finns voru föðurforeldrar Guðrúnar Þórðardóttur húsfreyju í Túni móður Jóns Vigfússonar bónda og smiðs í Túni.

Finnur var með foreldrum sínum í Garðakoti til ársins 1832. Hann var 13 ára léttadrengur í Drangshlíð u. Eyjafjöllum 1835, 19 ára vinnumaður þar 1840.
Finnur fluttist frá Skógum að Götu 1842. Þau Þuríður giftust 1843. Hann var 23 ára kvæntur sjómaður í Hólshúsi 1845 með Þuríði konu sinni jafnaldra.
Þau voru í Hólshúsi 1845 og 1846, á Steinsstöðum 1852 og síðan meðan bæði lifðu. Þuríður bjó þar ekkja 1897.
Finnur lést 1882.

Kona Finns, (9. nóvember 1843), var Þuríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 1823, d. 9. mars 1903.
Börn þeirra hér:
1. Sigurður Finnsson, f. 25. mars 1845 í Hólshúsi, d. 30. mars 1845 úr ginklofa.
2. Þorsteinn Finnsson, f. 3. júní 1846 í Hólshúsi, d. 9. júní 1846 úr ginklofa.
3. Sigurður Finnsson, f. 7. desember 1847, d. 11. júní 1851 „af Barnaveikin“.
4. Árni Finnsson, f. 22. febrúar 1851 á Steinsstöðum, d. 7. mars 1851 úr ginklofa.
5. Sigurfinnur Finnsson, f. 30. desember 1853 á Steinsstöðum, d. 7. janúar 1854 „af barnaveiki“.
Fóstursynir þeirra voru
6. Þórður Hjaltason, f. 19. mars 1852, hrapaði til bana úr Dalfjalli 25. ágúst 1897.
7. Árni Sigurðsson, f. 24. nóvember 1871, síðar í Dal, en fluttist síðast til Vesturheims.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.