Jón Einarsson yngri (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. janúar 2014 kl. 13:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. janúar 2014 kl. 13:49 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit


Jón Einarsson yngri á Gjábakka fæddist 1792 í Hvolhreppi og lést 11. apríl 1861. Hann er nefndur Jón Abel í prestþjónustubókum.
Faðir hans var Einar bóndi í Litla-Gerði og Litla-Moshvoli í Hvolhreppi, f. 1764 á Minni-Moshvoli þar, d. 3. janúar 1851, Ormsson bónda á Litla-Moshvoli, f. 1710, d. 9. apríl 1786 í Hvolhreppi, Jónssonar, og konu Orms Jónssonar, Geirlaugar húsfreyju, f. 1716, d. 3. janúar 1808, Einarsdóttur.
Móðir Jóns yngri á Gjábakka var barnsmóðir Einars Ormssonar, Þjóðlaug Jónsdóttir, f. 1760. Hún var húsfreyja í Litla-Gerði 1801, kona Ólafs Þórarinssonar bónda.

Jón yngri var 8 ára niðursetningur á Stóra-Moshvoli í Hvolhreppi 1801, vinnumaður á Torfastöðum í Fljótshlíð 1816, en þar var þá Sigríður Sæmundsdóttir vinnukona á einum bænum.
Hann var kominn að Gjábakka í Eyjum 1835, 43 ára, með Sigríði Sæmundsdóttur konu sinni 38 ára. Á Gjábakka var þá einnig bóndi Jón Einarsson eldri, 46 ára með konu sinni Margréti Vigfúsdóttur 40 ára og börnum þeirra, Grími 17 ára, Margréti 10 ára og Kristínu 14 ára. Jón var hálfbróðir Jóns yngri.
Við manntal 1840 er Jón bóndi á Gjábakka með Sigríði konu sinni, dótturinni Margréti 6 ára, Margréti bróðurdóttur Jóns 15 ára (foreldrar hennar höfðu látist 1836 og 1838). Einnig var þar Margrét Sæmundsdóttir systir Sigríðar húsfreyju, ógift 52 ára.
1845 var Jón 55 ára sjómaður á Gjábakka með Sigríði og Margrétunum, dóttur þeirra 11 ára og bróðurdóttur Jóns 20 ára vinnukonu.
1850 var Jón 58 ára bóndi þar með sama liði, en faðir Jóns, Einar Ormsson var hjá þeim, ekkill 89 ára.
1860 var Jón 68 ára bóndi og stefnuvottur á Gjábakka. Sigríður kona hans var þar 63 ára. Þar var Guðmundur Erlendsson 22 ára vinnumaður. Margrét dóttir þeirra var þar húskona með Ingimund húsmann og börnin Jón, Þórönnu og Stefán.

Kona Jóns Einarsson yngri var Sigríður Sæmundsdóttir húsfreyja, f. 1796, á lífi 1870.
Börn Sigríðar og Jóns hér:
1. Guðrún Jónsdóttir, f. 7. ágúst 1832, d. 14. ágúst 1832.
2. Ragnhildur Jónsdóttir, f. 12. ágúst 1833, d. 20. ágúst 1833.
3. Ásdís Jónsdóttir, f. 20. maí 1834, d. 26. maí 1834.
4. Margrét Jónsdóttir húsfreyja á Gjábakka, f. 26. maí 1835, d. 6. febrúar 1916. Maður hennar var Ingimundur Jónsson bóndi, formaður og hreppstjóri.
5. Andvana sveinbarn, f. 14. október 1839.
6. Kristín Jónsdóttir, f. 13 júní 1842, d. 21. júní 1842.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.