Halldóra Pétursdóttir (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. nóvember 2013 kl. 18:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. nóvember 2013 kl. 18:58 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Halldóra Pétursdóttir húsfreyja á Miðhúsum fæddist 1774 í Þykkvabæ í Landbroti, V-Skaft. og lést 1. maí 1822.
Faðir hennar var Pétur bóndi í Þykkvabæ, síðar á Gjábakka, f. 1738, d. 27. september 1792, Vilhjálmsson, og kona hans Sigríður Eiríksdóttir, f. 1740, d. 28. september 1786 á Gjábakka.

Halldóra var hjá foreldrum sínum í Þykkvabæ 1783, flúði með þeim undan Eldinum. Hún var gift kona á Kirkjubæ 1801, bústýra hjá Bjarna 1803, giftist honum 1806 og varð húsfreyja á Miðhúsum til dd.
Halldóra var tvígift.

I. Fyrri maður hennar, (trúl. 20. október 1793), var Þorsteinn Þorsteinsson bóndi á Kirkjubæ 1801, d. 24. nóvember 1801. Halldóra var síðari kona hans.
Börn þeirra hér:
1. Pétur Þorsteinsson, f. 10. maí 1794, á lífi 1801.
2. Sigríður Þorsteinsdóttir, f. í ágúst 1795, d. 30. ágúst 1795.
3. Jón Þorsteinsson, f. 23. febrúar 1796, á lífi 1801.
4. Benedikt Þorsteinsson, f. 3. nóvember 1798, d. 10. nóvember 1798.
5. Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 29. ágúst 1800, d. 5. september 1800.

II. Síðari maður hennar, (13. september 1806), var Bjarni Björnsson bóndi á Miðhúsum, f. 1752 í Ásgarði í Landbroti, d. 23. september 1827. Bjarni var áður tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Ingibjörg Hreiðarsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 1762. Þau skildu. Síðari kona hans var Þuríður Högnadóttir húsfreyja í Kornhól, f. 1767, d. 12. september 1801.
Börn þeirra Bjarna hér:
6. Þuríður Bjarnadóttir, f. 21. júlí 1803, d. 4. ágúst 1803.
7. Þuríður Bjarnadóttir, f. 29. maí 1804 á Miðhúsum, d. 25. nóvember 1821.
8. Elín Bjarnadóttir, f. 2. desember 1806 á Miðhúsum, d. 3. apríl 1834 á Oddsstöðum.
9. Ögmundur Bjarnason, f. 23. febrúar 1808, d. 1. mars 1808.
10. Hólmfríður Bjarnadóttir, f. 26. apríl 1810, d. 24. janúar 1855. Hún var í Garðinum 1835, vinnukona í Dölum 1845, skilin vinnukona í Kornhól 1850.
11. Sigríður Bjarnadóttir, f. 9. ágúst 1811, d. 15. ágúst 1811.
12. Sigríður Bjarnadóttir tvíburi, vinnukona á Oddsstöðum 1835, húsfreyja í Kornhól 1855, f. 25. júní 1814 í Eyjum, d. 15. september 1857, kona Helga Jónssonar, f. 1806.
13. Halldóra Bjarnadóttir tvíburi, f. 25. júní 1814.
14. Guðríður Bjarnadóttir, f. 5. janúar 1816.
15. Fósturbarn 1816 var Jónas Vestmann, f. 1797 í Reykjavík. Hann var sonur Þuríðar Högnadóttur. Hann var formaður á Þurfalingi og lést, eftir að bátnum hlekktist á í Leiðinni 1834.


Heimildir