Pétur Vilhjálmsson (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Pétur Vilhjálmsson bóndi í Þykkvabæ í Landbroti, V-Skaft., síðar á Gjábakka, fæddist 1738 og lést 27. september 1792 á Gjábakka.
Foreldra er ekki getið.
Hann var bóndi í Þykkvabæ 1773 eða fyrr og til 1784, er hann flúði undan Eldinum (Skaftáreldum).
Hann var kominn til Eyja 1785 og varð bóndi á Gjábakka 1786-dd. Hann lést 1792 „af yfirgangandi sótt“.

Pétur var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans var Sigríður Eiríksdóttur húsfreyju, f. 1740, d. 28. september 1786 á Gjábakka.
Börn þeirra hér talin:
1. Ástríður Pétursdóttir, f. (1768), d. fyrir 1810. Hún fór með foreldrum sínum til Eyja 1784, en var í Landbroti 1785.
2. Halldóra Pétursdóttir húsfreyja á Miðhúsum, f. 1774, d. 1. maí 1822. Hún var þriðja kona Bjarna Björnssonar á Miðhúsum.
3. Hólmfríður Pétursdóttir. Hún fór til Eyja með foreldrum sínum, en finnst ekki 1801.
4. Þorbjörg Pétursdóttir prestkona á Ofanleiti, f. 1778, d. 6. júní 1819. Hún var kona sr. Jóns Arasonar.

II. Síðari kona Péturs, (17. júní 1791), var Sigríður Hafliðadóttir, þá ekkja eftir Theódór Benediktsson bónda á Gjábakka.
Þau voru barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubók.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.