Árni Finnbogason (Hvammi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. ágúst 2013 kl. 22:55 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. ágúst 2013 kl. 22:55 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ráðhildur og Ágústa Árnadætur

Árni Sigurjón Finnbogason fæddist í Norðurgarði í Vestmannaeyjum þann 6. desember 1893 og lést 22. júní 1992. Foreldrar hans voru Finnbogi Björnsson og Rósa Eyjólfsdóttir. Hann var yngstur fimm sona þeirra. Bræður hans voru Björn Þórarinn, Ágúst Kristján, Stefán og Finnbogi. Eftir lát móður þeirra giftist faðir þeirra aftur og eignaðist tvo syni, annar þeirra Guðni.

Árni var kvæntur Guðbjörgu Aðalheiði Sigurðardóttur frá Brekkuhúsi. Hófu þau búskap í Bræðraborg og eignuðust níu börn. Guðbjörg Aðalheiður lést árið 1958. Síðari kona Árna var Erla Kristjánsdóttir.

Árni byrjaði ungur sjómennsku á Neptúnusi I. Árið 1916 hóf hann formennsku á Happasæl og ári síðar tók hann við Sillu og svo Helgu til ársloka 1924. Síðan var Árni með ýmsa báta til ársins 1939.

Árni var góður bjargveiðimaður og stundaði bjargsig og fuglaveiði í tugi ára.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Árna:

Ekki hræðir Árna á Vin
ölduslark á miðum,
löngum vosi og veðradyn
vanan á ystu sviðum.

Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Árna:

Árni ungur djúpin dökk
drafnar lungum hleypti,
þó að drunga fyllan frökk,
faldi þungum steypti.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Finnbogasoninn svinna
sinni mitt enn vill kynna.
Árni, þó kyljur kárni,
kannar enn miðin hranna.
Vini rær enn ólinur,
aldinn á færin kaldur.
Formanns á sögu sanna
sannlega það má kanna.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1965.

Frekari umfjöllun

Árni Sigurjón Finnbogason formaður frá Norðurgarði, fæddist 5. desember 1893 og lést 22. júní 1992.
Foreldrar hans voru Finnbogi Björnsson bóndi og formaður í Norðurgarði f. 1. janúar 1856, d. 16. apríl 1943, og fyrri konu hans Rósu Eyjólfsdóttur húsfreyju, f. 10. desember 1857, d. 6. janúar 1907.

Kona Árna var Guðbjörg Aðalheiður Sigurðardóttir frá Brekkuhúsi, f. 15. febrúar 1896, d. 30. janúar 1958.

Börn Árna og Aðalheiðar:
1. Rósa húsfreyja, f. 25. júní 1916, d. 12. mars 1983, fyrr gift Þórarni Bernótussyni, síðar Birni Arnórssyni.
2. Ráðhildur húsfreyja, f. 24. júní 1917, d. 14. janúar 1997, gift Gísla Þorsteinssyni.
3. Ágústa Kristín, f. 20. janúar 1919, d. 24. júní 1919.
4. Sigurbjörn sjómaður, f. 6. mars 1920, d. 31. desember 1998, fyrr kvæntur Maríu Björgvinsdóttur, síðar Ester S. Snæbjörnsdóttur.
5. Ágústa Kristín Árnadóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1921, gift Emil Jóhanni Magnússyni kaupmanni í Grundarfirði.
6. Aðalheiður Árnadóttir húsfreyja, f. 5. desember 1925, d. 20. september 1989, gift Pálma Péturssyni kennara.
7. Áslaug Árnadóttir húsfreyja, f. 20. janúar 1928, d. 18. júlí 2007, gift Pétri Sveinssyni bifreiðastjóra.
8. Finnbogi Árnason rafvirkjameistari, f. 5. maí 1930, kvæntur Guðbjörgu Þóru Steinsdóttur.
9. Borgþór Árnason vélstjóri, f. 27. september 1932, d. 14. febrúar 2008, kvæntur (skildu) Guðrúnu Andersen.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Árni er mjög liðlega vaxinn, rösklega meðalmaður á hæð og samsvarar sér vel. Hann er dökkhærður, en hvítur í andliti, laglegur maður, snar og liðugur í öllum hreyfingum. Hann er heldur ómannblendinn, en kátur í sínum hóp.
Hann hefir verið mikið við lundaveiðar aðallega í austureyjunum, en þess utan mjög við bjarggöngur í úteyjum og heimalandinu og verið góður liðsmaður í hvívetna, eflaust einn af betri lundaveiðimönnum seinni ára.
Hann hefir verið formaður á mótorbátum við gott gengi og gert út hin síðari ár. Háfinn hefir hann að mestu lagt til hliðar og að mestu hættur sjósókn.
Að öðru leyti vísast til Bjarnareyjarbókar.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.
  • Finnbogi Árnason.
  • Manntöl.
  • Verkfræðingatal I. Þorsteinn Jónsson. Þjóðsaga 1996.
  • Garður.is

Myndir