Einidrangur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. júlí 2005 kl. 08:54 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. júlí 2005 kl. 08:54 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Einnig er til hús sem heitir eftir skerinu. Hér er hægt að sjá grein um húsið Einidrangur (hús). Þar að auki er fyrirtæki sem kallar sig eftir drangnum, Þrídrangar ehf.



Einidrangur er vestasta skerið í Vestmannaeyjaklasanum og er það mjög langt frá Heimaey. Það er í útsuður frá Þrídröngum. Það er 32 metrar á hæð og ekki er talið að drangurinn hafi verið klifinn hingað til, enda er það talið ómögulegt. Í lögun og stærð er Einidrangur líkastur Geirfuglaskeri. Í Einadrangi er ekkert fuglavarp. Í kringum skerið, sérstaklega norðan við það, eru mörg stór og lítil sker.


Heimildir

  • Þorkell Jóhannesson. 1938. Örnefni í vestmannaeyjum. Reykjavík: Hið íslenzka þjóðvinafélag.