Blik 1961/Gísli Engilbertsson, verzlunarstjóri, kona hans og börn
Gísli Engilbertsson verzlunarstjóri
kona hans og börn
Gísli Engilbertsson, verzlunarstjóri, kona hans og börn.
Fremri röð frá vinstri: Engilbert Gíslason, málarameistari,
f. 12. okt 1877.
Gísli Engilbertsson, f. 14. ágúst 1834
að Syðri-Mörk, Eyjafjöllum, d. 8.
ágúst 1919.
Ragnhildur Þórarinsdóttir, f. 14. okt 1844, frá Neðri-Dal, Eyjafjöllum, d. 12. maí 1925.
Aftari röð frá v.: Þórarinn Gíslason, gjaldkeri, f. 4.
júní 1880, d. 12. febr. 1930.
Elínborg Gísladóttir, húsfreyja í Laufási, f. 1. nóv. 1883, kona Þorsteins Jónssonar, fyrrv. skipstj. og útgerðarmanns.
Guðfinna Gísladóttir, f. 15. júlí 1870, d. 2. ágúst 1955. Var gift
Halldóri Guðmundssyni, rafmagnsfræðingi í Reykjavík.
Katrín Gísladóttir, f. 20. jan. 1875. Var gift Páli Ólafssyni, verzlunarmanni.
Árið 1869 fluttist Gísli Engilbertsson til Vestmannaeyja með heitmey sína Ragnhildi Þórarinsdóttur. Þau fluttu frá Mörk undir Eyjafjöllum og settust að í Sjólyst
í Eyjum. Á jóladag sama ár voru þau gefin saman í hjónaband eftir að lýst hafði verið með þeim þrívegis í Landakirkju.
Eftir að Gísli Engilbertsson fluttist hingað, gerðist hann verzlunarþjónn við Tangaverzlun eða Verzlunina Júlíushaab, eins og hún hét þá. Hann reyndist dyggur og trúr í starfi og hygginn í verkum og viðskiptum Hann var starfsmaður fyrstu árin hjá J.P.T. Bryde, sem eignaðist verzlunina 1852, þá tvítugur að aldri. Þegar faðir hans, N. N. Bryde, dó, 9. ágúst 1879, erfði J.P.T. Bryde Garðsverzlun í Eyjum. En með því að enginn mátti eiga tvær verzlanir í Eyjum, eða reka tvær verzlanir á sama stað, leigði J.P.T. Bryde Gísla Engilbertssyni Júlíushaabverzlun. Það gerðist 1880. Næstu 9 árin rak síðan Gísli Tangaverzlunina á sínu nafni, en það ár gaf J.P.T Bryde syni sínum Herlug Bryde Tangaverzlunina. Eftir það var Gísli talinn verzlunarstjóri þeirrar verzlunar, þar til H. Bryde hætti verzlunarrekstri 1893.
Síðustu æviárin dvöldust þau hjón, Gísli og Ragnhildur, hjá syni sínum Þórarni gjaldkera að Lundi í Eyjum og konu hans Matthildi Þorsteinsdóttur (leiðr.).
Gísli Engilbertsson var góður hagyrðingur. Við birtum hér eilítið sýnishorn af kveðskap hans.
- BRÚÐKAUPSKVÆÐI
- BRÚÐKAUPSKVÆÐI
- ort, er Þorsteinn Jónsson í Laufási og
- Elínborg Gísladóttir, dóttir Gísla
- verzlunarstjóra, giftu sig, 22. nóvember 1903.
- Saklaus gleðin helg og hrein,
- hún skal með oss vera,
- ávöxt mun á grænni grein
- guðs í nafni bera.
- Saklaus gleðin helg og hrein,
- Látum brosin lauga kinn
- ljóss í geislum björtum,
- syngjum gleði í sálir inn,
- sorg og hryggð úr hjörtum.
- Látum brosin lauga kinn
- Gott er ei, var Adam tjáð,
- einsamall að búa.
- Þótt sé gamalt þetta ráð,
- því samt flestir trúa.
- Gott er ei, var Adam tjáð,
- Meðan varir vatn og grund,
- vermir sól og eldur,
- sér mun festa halur hrund.
- Helg því ástin veldur.
- Meðan varir vatn og grund,
- Undra máttar gegnum geim
- gengur náðarljóminn.
- Hann í sálarsólar heim
- sýnir kærleiks blómin.
- Undra máttar gegnum geim
- Sýnir tryggð sem grein við grein,
- guðs með krafti styður,
- út svo breiðast blöðin hrein.
- Blómstri hjónafriður.
- Sýnir tryggð sem grein við grein,
- Tryggðum bundin hjá oss hjón
- hér sem blóm nú standa
- ung og fjörug, fríð i sjón,
- frjáls og hrein í anda.
- Tryggðum bundin hjá oss hjón
- Eiga þau sér græna grein,
- guð sem blessað hefur.
- Móðurástin helga. hrein
- hana örmum vefur.
- Eiga þau sér græna grein,
- Hjálpar lifðu engir án,
- öllum dug þótt beittu.
- Barnavinur barnalán
- börnum þínum veittu.
- Hjálpar lifðu engir án,
- Drottinn hjónum leggi lið
- lífs í sæld og þrautum,
- að þau víki aldrei við
- út af skyldubrautum.
- Drottinn hjónum leggi lið
- Guðdómsnáðar geislasól
- gleðji hjón og blessi,
- trú og von og vinaskjól
- vegum á þau hressi.
- Guðdómsnáðar geislasól
- Guð vors auðs síns gnægtum af
- gjafir veiti hjónum.
- Sólin, loftið, láð og haf
- líti þau hýrum sjónum.
- Guð vors auðs síns gnægtum af
- Drottinn okkar blessi byggð,
- blessi hjónafriðinn,
- upp mót sólu, dáð og dyggð
- dagur unz er liðinn.
- Drottinn okkar blessi byggð,
- S T Ö K U R .
- Vínið og vitið
- Brennivíns nú bunar lind
- bragnar róminn hækka.
- Ýmsra fýkur vit í vind,
- við það krónur fækka.
- Brennivíns nú bunar lind
- Jómfrúhitinn
- Jómfrúhitinn ekki er
- orðinn á marga fiska.
- Einhver skollinn burt hann ber,
- bágt er á að gizka.
- Jómfrúhitinn ekki er
- Eftír 1. des. 1918
- Danir Ísland vingast við,
- vilja hvorir annars frið.
- Árin líða, tími og tíð,
- tekur enda sérhvert stríð.
- Danir Ísland vingast við,
- Vertu iðinn
- Sé iðjusemin okkur kær,
- oft í sálu friður grær,
- þá margur háu marki nær
- og margur hjálpað öðrum fær.
- Sé iðjusemin okkur kær,
- Iðjuleysi eyðir þrótt,
- iðjuleysi svæfir drótt.
- Oft því fylgir eyðslusótt,
- óhóf, svall og slark um nótt.
- Iðjuleysi eyðir þrótt,
- Iðjusemi um ævistund
- oft hún færir gull í mund,
- iðulega styttir stund,
- styrkir heilsu, gleður lund.
- Iðjusemi um ævistund
- RITNEFND BLIKS að þessu sinni skipa:
- RITNEFND BLIKS að þessu sinni skipa:
- Þorsteinn Þ. Víglundsson, formaður.
- Sigríður Jakobsdóttir, 3. bóknáms.
- María Gunnardóttir, 3. bekk verkn.
- Áki Haraldsson, 1. bekk C.
- Kristján Eggertsson, 1. bekk B.
- Stefán Jónsson, 1. bekk A.
- Kristján Óskarsson, 2. bekk A.
- Rut Óskarsdóttir, 2. bekk B.
- Steinar Árnason, 2. bekk C.
- Þorsteinn Þ. Víglundsson, formaður.
- Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
- S P A U G
Þrír strákar fóru á vakningarsamkomu. Þegar henni lauk, var komið til þeirra með samskotabauk. Þá leið yfir einn, en hinir báru hann út.
Sonurinn: „Pabbi, hvað er eiginlega fjármálasnillingur?“ Faðirinn: „Það er maður, sem aflar meiri peninga en konan hans getur eytt.“