Hani

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 14:23 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 14:23 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Nafn eyjunnar er dregið af því að hún lítur út fyrir að vera með kamb. Hani er 97 m hár, hæstur þar sem heitir Hanahöfuð. Eyjan er umkringd háum hömrum sem eru víðast þverhníptir nema helst að vestanverðu. Í brekkunni móti suðri vex bæði gras, skarfakál og slatti af baldursbrá.