Fjölskyldan í Hlíðarhúsum um 1895. Friðrik Gísli Gíslason tók myndina. Skýring við fjölskyldumynd frá Hlíðarhúsum samkv. Þóri Óskarssyni, Kárasonar og Jes Einari Þorsteinssyni, Einarssonar. Fremsta röð frá vinstri: Friðrik Gísli ljósmyndari, f. 1870, d. 1906, Gísli Stefánsson kaupmaður, húsbóndi, f. 1842, d. 1903, heldur á (líklega) Rebekku, sem dó 3-4 ára, Soffía Lísbet húsfreyja, f. 1847, d. 1936, heldur á Kristjáni sjómanni, f. 1891, d. 1948. Miðröð frá vinstri: Anna Ásdís , síðar Johnsen , húsfreyja, f. 1878, d. 1945, Guðbjörg Jónína , síðar Petersen og síðast kona Sæmundar Jónssonar , húsfreyja, f. 1880, d. 1969, Jóhann sjómaður og verkamaður, f. 1883, d. 1944 og Lárus ljósmyndari, f. 1885, d. 1950. Aftasta röð frá vinstri: Ágúst útvegsbóndi, f. 1874, d. 1922, Jes Anders á Hól , prestur, verzlunarstjóri, kennari, bókasafnsvörður, f. 1872, d. 1961 og Stefán útvegsbóndi og veitingamaður á Sigríðarstöðum , f. 1876, d. 1953.
Séra Jes A. Gíslason var fæddur 22. maí 1872 og lést 7. febrúar 1961. Foreldrar hans voru Gísli Stefánsson kaupmaður í Hlíðarhúsi og Soffía Lisbeth Andersdóttir .
Hann var 9 ára er hann hóf nám í Barnaskóla Vestmannaeyja og yngstur nemenda í fyrsta árgangi skólans. Þrátt fyrir að vera yngstur var hann með hæstu einkunn ásamt bróður sínum, Friðriki. Hann var albróðir Friðriks Gíslasonar frá Hlíðarhúsi .
Kona Jes var Kristjana Ágústa Eymundsdóttir . Á meðal barna þeirra voru Friðrik og Anna .
Jes var bókasafnsvörður á árunum 1942–1949, auk þess að vera kennari og prestur.
Heimildir