Hilmisgata

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. ágúst 2026 kl. 11:15 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. ágúst 2026 kl. 11:15 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Íbúðarhúsin við Hilmisgötu. Utan þessara húsa er aðeins eitt íbúðarhús við Hilmisgötu.

Hilmisgata fær nafn sitt frá heimsókn Kristjáns 10. Danakonungs, 25. júní árið 1921. Gatan hafði þá ekkert nafn en gekk þó undir nafninu Tukthússtígur og eftir að konungur gekk um götuna var ákveðið að kalla götuna Hilmisgötu, því hilmir merkir konungur.

Árið 2005 voru einungis 7 íbúðir eru við Hilmisgötu og skv. upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ voru búar götunnar þá 21 talsins. Fjölbýlishús var byggt árið 2009 á reitnum þar sem lögreglustöðin gamla var en hún brann til kaldra kola árið 1988. Þá fjölgaði íbúðum um 6 og íbúum eftir því.

Skrúðganga á Hilmisgötu.

Húsið Arnardrangur er eitt sögufrægasta húsið í götunni. Þar hefur ýmiss konar starfsemi verið í gegnum tíðina; heilsugæsla og læknastofur, Tónlistarskólinn, aðstaða Lúðrasveitar Vestmannaeyja og AA samtökin. Nú er Rauðakrossdeildin í Vestmannaeyjum þar til húsa svo og Lionsklúbbur Vestmannaeyja. Arnardrangur var byggður árið 1928. Flest húsin á svæðinu eru byggð á sama tímabili.

Nokkrar stofnanir og félög eru í götunni; Snyrtistofa Ágústu, Rauði Krossinn, Lions-klúbburinn, Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar og Akóges.

Nefnd hús á Hilmisgötu

Ónefnd hús á Hilmisgötu

Íbúar við Hilmisgötu

Gatnamót