Halldóra Gísladóttir (Héðinshöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. janúar 2026 kl. 14:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. janúar 2026 kl. 14:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Halldóra Gísladóttir''' frá Héðinshöfða, húsfreyja, grunnskólakennari fæddist 30. september 1955.<br> Foreldrar hennar voru Gísli Gíslason skipasmiður, f. 13. nóvember 1902 í Stekkjum í Flóa, d. 24. desember 1972, og kona hans Ásdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1913 á Sólheimum í Hrunamannahreppi, d. 9. október 1995. Börn Ásdísar og Gísla:<br> 1. [...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Halldóra Gísladóttir frá Héðinshöfða, húsfreyja, grunnskólakennari fæddist 30. september 1955.
Foreldrar hennar voru Gísli Gíslason skipasmiður, f. 13. nóvember 1902 í Stekkjum í Flóa, d. 24. desember 1972, og kona hans Ásdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1913 á Sólheimum í Hrunamannahreppi, d. 9. október 1995.

Börn Ásdísar og Gísla:
1. Unnur Gísladóttir húsfreyja á Akureyri og í Reykjavík, f. 10. ágúst 1934 í Reykjavík.
2. Haukur Gíslason vélstjóri í Eyjum, f. 29. október 1935 á Stóru-Heiði, d. 2. mars 1980.
3. Garðar Gíslason skósmiður í Kópavogi, f. 3. mars 1937 á Stóru-Heiði.
4. Guðrún Gísladóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði.
5. Sigríður Gísladóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði.
6. Gísli Gíslason bóndi á Geldingalæk á Rangárvöllum, f. 15. mars 1940 í Birtingarholti.
7. Þóra Gísladóttir, f. 6. ágúst 1941 í Héðinshöfða, d. 1. mars 1944.
8. Guðmundur Gíslason sjómaður, f. 2. nóvember 1942 í Héðinshöfða, d. 5. nóvember 1968.
9. Halldóra Gísladóttir, f. 20. júlí 1944 í Héðinshöfða, hrapaði til bana úr Hánni 17. maí 1954.
10. Sigurlaug Gísladóttir húsfreyja, f. 12. janúar 1946 í Héðinshöfða, d. 9. nóvember 2022.
11. Stefán Gíslason, f. 21. október 1948 í Héðinshöfða, d. af slysförum 22. apríl 1966.
12. Ólafur Gíslason verkstjóri, f. 12. nóvember 1949 í Héðinshöfða.
13. Kristrún Gísladóttir húsfreyja, f. 2. mars 1952 í Héðinshöfða.
14. Halldóra Gísladóttir húsfreyja, kennari, f. 30. september 1955 í Héðinshöfða.
15. Þóra Gísladóttir húsfreyja, f. 5. mars 1957 í Héðinshöfða.

Halldóra eignaðist barn með Haraldi 1979.
Þau Sigurjón giftu sig, eignuðust ekki börn saman. Þau búa í Kópavogi.

I. Barnsfaðir Halldóru er Haraldur Geir Hlöðversson kennari, lögreglumaður, rekur ferðaþjónustu, f. 24. júlí 1956.
Barn þeirra:
1. Ásdís Haralds Johnsen lögreglufulltrúi, f. 11. janúar 1979.

II. Maður Halldóru er Sigurjón Guðmundsson úr Kópavogi, fisksali, f. 16. febrúar 1965. Foreldrar hans Guðrún Jóna Sigurjónsdóttir, f. 2. mars 1938, d. 8. mars 1997, og Daníel Guðmundur Sveinbjörnsson, f. 4. ágúst 1933, d. 24. ágúst 1979.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.