Sigurlaug Gísladóttir (Héðinshöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sigurlaug Gísladóttir.

Sigurlaug Gísladóttir frá Héðinshöfða við Hásteinsveg 36, húsfreyja, verkakona fæddist 12. janúar 1946 og lést 9. nóvember 2022 á Landspítalanum.
Foreldrar hennar voru Gísli Gíslason skipasmiður, f. 13. nóvember 1902 í Stekkjum í Flóa, d. 24. desember 1972, og kona hans Ásdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1913 á Sólheimum í Hrunamannahreppi, d. 9. október 1995.

Börn Ásdísar og Gísla:
1. Unnur Gísladóttir húsfreyja á Akureyri og í Reykjavík, f. 10. ágúst 1934 í Reykjavík.
2. Haukur Gíslason vélstjóri í Eyjum, f. 29. október 1935 á Stóru-Heiði, d. 2. mars 1980.
3. Garðar Gíslason skósmiður í Kópavogi, f. 3. mars 1937 á Stóru-Heiði.
4. Guðrún Gísladóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði.
5. Sigríður Gísladóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði.
6. Gísli Gíslason bóndi á Geldingalæk á Rangárvöllum, f. 15. mars 1940 í Birtingarholti.
7. Þóra Gísladóttir, f. 6. ágúst 1941 í Héðinshöfða, d. 1. mars 1944.
8. Guðmundur Gíslason sjómaður, f. 2. nóvember 1942 í Héðinshöfða, d. 5. nóvember 1968.
9. Halldóra Gísladóttir, f. 20. júlí 1944 í Héðinshöfða, hrapaði til bana úr Hánni 17. maí 1954.
10. Sigurlaug Gísladóttir húsfreyja, f. 12. janúar 1946 í Héðinshöfða, d. 9. nóvember 2022.
11. Stefán Gíslason, f. 21. október 1948 í Héðinshöfða, d. af slysförum 22. apríl 1966.
12. Ólafur Gíslason verkstjóri, f. 12. nóvember 1949 í Héðinshöfða.
13. Kristrún Gísladóttir húsfreyja, f. 2. mars 1952 í Héðinshöfða.
14. Halldóra Gísladóttir húsfreyja, kennari, f. 30. september 1955 í Héðinshöfða.
15. Þóra Gísladóttir húsfreyja, f. 5. mars 1957 í Héðinshöfða.

Sigurlaug var með foreldrum sínum.
Hún vann ýmis störf, við fiskiðnað, umönnun, verslunarstörf, og starf skólaliða í Lindaskóla í Kópavogi.
Þau Þorvaldur Helgi giftu sig 1965, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu við Miðstræti 19 við Gosið 1973, síðar í Hafnarfirði, Holtsbúð í Garðabæ, Rjúpufelli 32 í Reykjavík, en síðast í Fjallalind 6 í Kópavogi.
Sigurlaug lést 2022.

I. Maður Sigurlaugar, (21. ágúst 1965 í Eyjum), er Þorvaldur Helgi Benediktsson húsamíðameistari, lögreglumaður, f. 28. júlí 1945 á Hólmavík.
Börn þeirra:
1. Halldóra Þorvaldsdóttir skrifstofumaður, f. 19. júlí 1965. Fyrrum maður hennar Kristján Helgason. Maður hennar Ronny Thorød.
2. Matthildur Þorvaldsdóttir kennari, f. 16. október 1966. Barnsfaðir hennar Jón Þór Einarsson. Maður hennar Agnar Steinarsson.
3. Þórunn Helga Þorvaldsdóttir bóndi, leikskólakennari, f. 17. ágúst 1972. Maður hennar Jóhann Böðvarsson.
4. Guðmundur Stefán Þorvaldsson tölvunarfræðingur, f. 17. mars 1977. Fyrrum kona hans Lilja Dögg Gunnarsdóttir. Unnusta hans Jóhanna G. Þórisdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 21. nóvember 2022. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Þjóðskrá 1986.
  • Þorvaldur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.