Ólafur Gíslason (Héðinshöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Gíslason, frá Héðinshöfða, verkstjóri fæddist 12. nóvember 1949.
Foreldrar hans voru Gísli Gíslason skipasmiður, f. 13. nóvember 1902, d. 24. desember 1972, og kona hans Ásdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 10. ágúst 1913, d. 9. október 1995.

Börn Ásdísar og Gísla:
1. Unnur Gísladóttir húsfreyja á Akureyri og í Reykjavík, f. 10. ágúst 1934 í Reykjavík.
2. Haukur Gíslason vélstjóri í Eyjum, f. 29. október 1935 á Stóru-Heiði, d. 2. mars 1980.
3. Garðar Gíslason skósmiður í Kópavogi, f. 3. mars 1937 á Stóru-Heiði.
4. Guðrún Gísladóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði.
5. Sigríður Gísladóttir húsfreyja, f. 3. nóvember 1938 á Stóru-Heiði, d. 6. janúar 2024.
6. Gísli Gíslason bóndi á Geldingalæk á Rangárvöllum, f. 15. mars 1940 í Birtingarholti.
7. Þóra Gísladóttir, f. 6. ágúst 1941 í Héðinshöfða, d. 1. mars 1944.
8. Guðmundur Gíslason sjómaður, f. 2. nóvember 1942 í Héðinshöfða, d. 5. nóvember 1968.
9. Halldóra Gísladóttir, f. 20. júlí 1944 í Héðinshöfða, hrapaði til bana úr Hánni 17. maí 1954.
10. Sigurlaug Gísladóttir húsfreyja, f. 12. janúar 1946 í Héðinshöfða, d. 9. nóvember 2022.
11. Stefán Gíslason, f. 21. október 1948 í Héðinshöfða, d. af slysförum 22. apríl 1966.
12. Ólafur Gíslason verkstjóri, f. 12. nóvember 1949 í Héðinshöfða.
13. Kristrún Gísladóttir húsfreyja, f. 2. mars 1952 í Héðinshöfða.
14. Halldóra Gísladóttir húsfreyja, kennari, f. 30. september 1955 í Héðinshöfða.
15. Þóra Gísladóttir húsfreyja, f. 5. mars 1957 í Héðinshöfða.

Þau Birna Soffía giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Hrauntún 67.

I. Kona Ólafs er Birna Soffía Björnsdóttir, húsfreyja, póstafgreiðslumaður, f. 26. október 1961.
Börn þeirra:
1. Unnar Hólm Ólafsson, f. 16. desember 1981.
2. Elfa Ásdís Ólafsdóttir, f. 2. nóvember 1983.
3. Arnór Eyvar Ólafsson, f. 27. nóvember 1989.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.