Bjarni Daníelsson (Hellishólum)
Guðmundur Bjarni Daníelsson, verkamaður, iðnaðarmaður fæddist 12. febrúar 1955.
Foreldrar hans voru Daníel Guðmundsson bifreiðastjóri, innheimtumaður, f. 14. nóvember 1925 í Hafnarfirði, d. 19. júlí 1996, og kona hans Marta Hjartardóttir frá Hellisholti, húsfreyja, f. þar 30. júní 1926, d. 17. janúar 2021 í Reykjanesbæ.
Börn Mörtu og Daníels:
1. Hafdís Daníelsdóttir húsfreyja, sjúkrahússstarfsmaður í Eyjum, rak verslunina Heimaver, býr nú í Hafnarfirði, f. 15. apríl 1947 á Lágafelli við Vestmannabraut 10. Maður hennar var Yngvi Björgvin Ögmundsson kaupmaður í Heimaveri, f. 27. apríl 1943, d. 20. júlí 2016.
2. Guðbjartur Daníelsson í Njarðvík, húsasmiður, f. 18. nóvember 1950 á Hellishólum við Bröttugötu 10. Kona hans er Guðmunda Lára Guðmundsdóttir húsfreyja, kennari, f. 19. júní 1950.
3. Guðmundur Bjarni Daníelsson verkamaður, iðnaðarmaður, f. 12. febrúar 1955 á Hellishólum. Kona hans er Jóhanna Kristinsdóttir húsfreyja.
4. Daníel Guðni Daníelsson bifreiðastjóri, skiltagerðarmaður í Reykjanesbæ, f. 6. apríl 1957 á Sjúkrahúsinu. Kona hans er Petrína Sigurðardóttir húsfreyja.
5. Hjörtur Kristján Daníelsson bifreiðastjóri, rekur fyrirtækið Plexigler í Reykjanesbæ, f. 17. maí 1964 á Sjúkrahúsinu. Kona hans er Kristín Guidice húsfreyja og verslunarrekandi, f. 1. október 1963.
Þau Jóhanna giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Reykjanesbæ.
I. Kona Bjarna er Jóhanna Kristinsdóttir úr Rvk, húsfreyja, verkstjóri, f. 21. febrúar 1958. Foreldrar hennar Kristinn E. Guðmundsson, f. 6. febrúar 1934, d. 8. júní 2010, og Guðríður Geira Kristjánsdóttir, f. 27. júlí 1934.
Börn þeirra:
1. Guðríður Marta Guðmundsdóttir, f. 20. september 1974.
2. Kristinn Eyjólfur Guðmundsson, f. 17. júlí 1978.
3. Daníel Guðni Guðmundsson, f. 17. nóvember 1986.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Bjarni.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.