Hrönn Hjörleifsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. febrúar 2025 kl. 11:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. febrúar 2025 kl. 11:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Hrönn Hjörleifsdóttir''' húsfreyja, skrifstofumaður, bankastarfsmaður fæddist 1. desember 1956.<br> Foreldrar hennar Hjörleifur Már Erlendsson, bifreiðaréttingamaður, bifreiðamálari, bifreiðastjóri, listmálari, f. 13. október 1927, d. 3. desember 1999, og kona hans Ástrós Eyja Kristinsdóttir, húsfreyja, f. 7. nóvember 1933, d. 31. mars 2012. Börn Ástrósar og Hjörleifs:<br> 1. Harpa Hjörleifsdóttir húsfreyja, f. 4. janúar 1953, d. 19...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hrönn Hjörleifsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, bankastarfsmaður fæddist 1. desember 1956.
Foreldrar hennar Hjörleifur Már Erlendsson, bifreiðaréttingamaður, bifreiðamálari, bifreiðastjóri, listmálari, f. 13. október 1927, d. 3. desember 1999, og kona hans Ástrós Eyja Kristinsdóttir, húsfreyja, f. 7. nóvember 1933, d. 31. mars 2012.

Börn Ástrósar og Hjörleifs:
1. Harpa Hjörleifsdóttir húsfreyja, f. 4. janúar 1953, d. 19. júlí 2019, gift Þórði Haraldssyni.
2. Þröstur Elfar Hjörleifsson bankastarfsmaður, lögreglumaður, f. 2. nóvember 1954, kvæntur Dýrborgu Ragnarsdóttur.
3. Hrönn Hjörleifsdóttir húsfreyja, f. 1. desember 1955, gift Þorgeiri Kolbeinssyni.
4. Hlíf Hjörleifsdóttir húsfreyja, f. 28. janúar 1957, d. 30. desember 2009. Sambýlismaður Ómar Leifsson.
5. Sóley Vaka Hjörleifsdóttir húsfreyja, f. 27. júlí 1963, gift Jóhanni Guðnasyni.
6. Bylgja Dögg Hjörleifsdóttir húsfreyja, f. 30. júlí 1970. Sambýlismaður Guðjón Paul Erlendsson.

Þau Þorgeir giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau búa í Garðinum í Suðurnesjabæ.

I. Maður Hrannar er Þorgeir Kolbeinsson málari, f. 3. desember 1954. Foreldrar hans Kolbeinn Þorgeirsson, f. 24. desember 1923, d. 11. febrúar 2007, og Katrín Ruth Jónsdóttir, f. 11. maí 1927, d. 4. október 2007.
Börn þeirra:
1. Vignir Már Þorgeirsson, f. 28. maí 1976.
2. Katrín Ruth Þorgeirsdóttir, f. 14. maí 1979.
3. Guðbjörg Valdís Þorgeirsdóttir, f. 2. júní 1983.
4. Ingunn Björk Þorgeirsdóttir, f. 14. maí 1989.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.