Bylgja Sigurjónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. desember 2024 kl. 11:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. desember 2024 kl. 11:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Bylgja Sigurjónsdóttir''', húsfreyja, verkakona í Hafnarfirði fæddist 25. september 1962.<br> Foreldrar hennar voru Sigurjón Jónsson frá Engey, sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 21. október 1923, d. 8. október 1991, og kona hans Bjarnveig Ólafsdóttir, frá Siglufirði, húsfreyja, f. 30. janúar 1924, d. 23. mars 1964. Börn Bjarnveigar og Sigurjóns:<br> 1. Harpa Sigurjónsdóttir|Sigríður ''Harpa'' Sigur...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Bylgja Sigurjónsdóttir, húsfreyja, verkakona í Hafnarfirði fæddist 25. september 1962.
Foreldrar hennar voru Sigurjón Jónsson frá Engey, sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 21. október 1923, d. 8. október 1991, og kona hans Bjarnveig Ólafsdóttir, frá Siglufirði, húsfreyja, f. 30. janúar 1924, d. 23. mars 1964.

Börn Bjarnveigar og Sigurjóns:
1. Sigríður Harpa Sigurjónsdóttir, verkakona, húsfreyja á Selfossi, f. 2. janúar 1951 á Skjaldbreið. Fyrrum maður hennar Lýður Ægisson. Maður hennar Héðinn Konráðsson.
2. Ragnar Sigurjónsson, ljósmyndari, blaðamaður í Mosfellsbæ, verslunarmaður á Selfossi, f. 14. júní 1952 á Skjaldbreið. Fyrrum kona Margrét Klara Jóhannsdóttir. Kona hans Sigríður Oddný Stefánsdóttir.
3. Hrönn Sigurjónsdóttir, húsfreyja, starfsmaður á leikskóla í Hafnarfirði, f. 28. janúar 1954. Fyrrum maður hennar Guðbrandur Jónatansson. Fyrrum sambýlismaður Gestur Páll Gunnbjörnsson. Maður hennar Sigurður Már Sigurðsson.
4. Sigurjón Sigurjónsson, verkstjóri, f. 29. desember 1958. Fyrrum kona hans Erna Ólöf Óladóttir.
5. Bylgja Sigurjónsdóttir, húsfreyja í Hafnarfirði, f. 25. september 1962. Fyrrum sambýlismaður Dagur Bjarnason.

Þau Dagur hófu sambúð, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Bylgja býr í Hfirði.

I. Fyrrum sambúðarmaður Bylgju er Dagur Bjarnason, f. 22. janúar 1968. Foreldrar hans Bjarni Hafsteinn Geirsson, f. 15. mars 1944, og Helga Garðarsdóttir, f. 8. ágúst 1940.
Barn þeirra:
1. Bjarnveig Dagsdóttir, f. 7. febrúar 1993.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.