Hrefna Hilmisdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. október 2024 kl. 13:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. október 2024 kl. 13:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Hrefna Hilmisdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Hrefna Hilmisdóttir, húsfreyja, verkakona, verslunarmaður, sunnudagaskólakennari, rekstrarfulltrúi, ferðarekandi, formaður Kvenfélagsins Heimaeyjar, fæddist 3. júlí 1949 í Vatnsdal.
Foreldrar hennar Hilmir Högnason, frá Vatnsdal, rafvirkjameistari, f. 27. ágúst 1923, d. 5. desember 2014, og kona hans Alda Björnsdóttir, húsfreyja, myndlistakona, f. 4. júlí 1928, d. 18. apríl 2020.

Börn Öldu og Hilmis:
1. Hörður Hilmisson rafvirki, f. 12. desember 1947 á Heiðarvegi 30. Kona hans Sunneva Marentza Poulsen.
2. Hrefna Hilmisdóttir ferðarekandi, f. 3. júlí 1949 í Vatnsdal. Maður hennar Ólafur Örn Ólafsson.
3. Guðný Sigríður Hilmisdóttir húsfreyja, f. 19. febrúar 1951 í Vatnsdal. Barnsfaðir Gunnar Hafdal. Sambúðarmaður Pétur Martin Færseth.
4. Birna Hilmisdóttir húsfreyja, f. 2. apríl 1953 að Heiðarvegi 30. Maður Gunnar Ingi Einarsson.
5. Inga Jóna Hilmisdóttir þroskaþjálfi, leikskólakennari, f. 8. mars 1963.
6. Högni Þór Hilmisson tónlistarmaður, f. 4. febrúar 1964. Barnsmóðir Dagmar Óskarsdóttir.
7. Örn Hilmisson sjómaður, f. 1. apríl 1965. Kona hans Annika Morit Guðnadóttir.
8. Óðinn Hilmisson húsasmiður, sjómaður, f. 1. apríl 1965. Kona Martina Filippone.

Þau Ólafur Örn giftu sig 1969, eignuðust fjögur börn. Þau búa í Kópavogi.

I. Maður Hrefnu, (24. maí 1969), er Ólafur Örn Ólafsson, umboðsmaður, vélvirkjameistari, f. 14. janúar 1947.
Börn þeirra:
1. Hilmir Ólafsson, f. 1. janúar 1969 í Eyjum.
2. Örvar Guðni Ólafsson, f. 2. desember 1976 í Eyjum.
3. Andri Ólafsson, f. 2. desember 1983 í Eyjum.
4. Sindri Ólafsson, f. 2. desember 1983 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.