Ingimundur Bernharðsson (þjónustufulltrúi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. október 2024 kl. 14:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. október 2024 kl. 14:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Ingimundur Bernharðsson''', sjómaður, bifvélavirkjameistari, þjónustufulltrúi fæddist 21. febrúar 1955 í Eyjum.<br> Foreldrar hans Bernharð Ingimundarson, sjómaður, stýrimaður, skipstjóri, útgerðarmaður, verkamaður, f. 30. október 1935, og kona hans Oddný ''Fjóla'' Sigurðardóttir, vinnukona, húsfreyja, f. 18. október 1936. Börn Fjólu og Bernharðs:<br> 1. Ingimundur Bernharðsson (þjónustufulltrúi)|Ingimundur...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ingimundur Bernharðsson, sjómaður, bifvélavirkjameistari, þjónustufulltrúi fæddist 21. febrúar 1955 í Eyjum.
Foreldrar hans Bernharð Ingimundarson, sjómaður, stýrimaður, skipstjóri, útgerðarmaður, verkamaður, f. 30. október 1935, og kona hans Oddný Fjóla Sigurðardóttir, vinnukona, húsfreyja, f. 18. október 1936.

Börn Fjólu og Bernharðs:
1. Ingimundur Bernharðsson þjónustufulltrúi í Reykjavík, f. 21. febrúar 1955. Kona hans Guðrún Ásdís Lárusdóttir.
2. Kristín Bernharðsdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 19. júlí 1959. Maður hennar Sigurður Baldursson.
3. Hávarður Guðmundur Bernharðsson húsasmíðameistari á Ísafirði, f. 30. september 1962. Fyrrum kona hans Sigrún Jóna Sigmarsdóttir. Kona hans Ingibjörg Snorradóttir.

Þau Guðrún giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Eyjum, á Skagaströnd, Akureyri og í Rvk.

I. Kona Ingimundar er Guðrún Ásdís Lárusdóttir, frá Skagaströnd, húsfreyja, f. 9. ágúst 1954.
Börn þeirra:
1. Sigurlaug Lára Ingimundardóttir, húsfreyja, vinnur við aðhlynningu og er í námi í leikskólafræðurm í HÍ, f. 19. maí 1975.
2. Bernharð Kristinn Ingimundarson, ljósmyndari, f. 11. desember 1981.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.