Erla Pálsdóttir (Heiðarvegi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. ágúst 2024 kl. 14:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. ágúst 2024 kl. 14:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Erla Pálsdóttir''', húsfreyja, starfsstúlka fæddist 8. maí 1944 á Heiðarvegi 28.<br> Foreldrar hennar voru Páll Eyjólfsson forstjóri, f. 22. september 1901 á Klöpp í Höfnum, Gull., d. 4. apríl 1986, og kona hans Fanný Guðjónsdóttir frá Oddsstöðum, húsfreyja, f. 4. mars 1906, d. 26. nóvember 1994. Börn Fannýjar og Páls:<br> 1. Guðjón Pá...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Erla Pálsdóttir, húsfreyja, starfsstúlka fæddist 8. maí 1944 á Heiðarvegi 28.
Foreldrar hennar voru Páll Eyjólfsson forstjóri, f. 22. september 1901 á Klöpp í Höfnum, Gull., d. 4. apríl 1986, og kona hans Fanný Guðjónsdóttir frá Oddsstöðum, húsfreyja, f. 4. mars 1906, d. 26. nóvember 1994.

Börn Fannýjar og Páls:
1. Guðjón Pálsson tónlistarmaður, f. 23. ágúst 1929 í Háagarði, d. 12. apríl 2014.
2. Helga Pálsdóttir, f. 30. mars 1931 í Háagarði, d. 6. janúar 1932 í Háagarði.
3. Eyjólfur Helgi Pálsson skólastjóri, framkvæmdastjóri, f. 20. maí 1932 í Háagarði, d. 29. október 1998.
4. Jón Pálsson sjómaður, skipstjóri, f. 18. júní 1934 að Helgafellsbraut 19, d. 22. júní 2015.
5. Guðlaug Pálsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 14. apríl 1939 á Helgafellsbraut 19.
6. Guðrún Ásta Pálsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 20. apríl 1940 á Helgafellsbraut 19.
7. Erla Pálsdóttir húsfreyja, starfsstúlka, f. 8. maí 1944 á Heiðarvegi 28.
8. Tómas Njáll Pálsson bankastarfsmaður, f. 4. september 1950 á Heiðarvegi 28.

Þau Óskar Már giftu sig, eignuðust þrjú börn, bjuggu við Hrauntún 20. Þau skildu.

I. Maður Erlu, skildu, er Óskar Már Ólafsson, stýrimaður, f. 20. mars 1943.
Börn þeirra:
1. Bjarni Óskarsson, f. 10. júlí 1968 í Eyjum.
2. Anna Þóra Óskarsdóttir, f. 4. september 1970 í Eyjum.
3. Steinþór Óskarsson, f. 15. ágúst 1978 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.