Sigríður Petra Hansen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júní 2024 kl. 10:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júní 2024 kl. 10:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sigríður Petra Hansen''', húsfreyja, starfsmaður á leikskóla fæddist 20. maí 1959.<br> Foreldrar hennar voru Joen Edvard Jacob Hansen frá Færeyjum, sjómaður, útgerðarmaður, afgreiðslumaður, f. 26. júní 1915, d. 17. september 2011, og kona hans Ester Hjálmarsdóttir frá Bjargi í Bakkafirði, húsfreyja, forstöðumaður, f. 19. júní 1922, d. 14. maí 2008. Börn Esterar og Jógvans:<br> 1....)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Petra Hansen, húsfreyja, starfsmaður á leikskóla fæddist 20. maí 1959.
Foreldrar hennar voru Joen Edvard Jacob Hansen frá Færeyjum, sjómaður, útgerðarmaður, afgreiðslumaður, f. 26. júní 1915, d. 17. september 2011, og kona hans Ester Hjálmarsdóttir frá Bjargi í Bakkafirði, húsfreyja, forstöðumaður, f. 19. júní 1922, d. 14. maí 2008.

Börn Esterar og Jógvans:
1. Ingólfur Hansen, f. 11. ágúst 1941. Kona hans María Björk Eiðsdóttir, látin.
2. Sonja Hansen, f. 25. janúar 1944. Maður hennar Þórður Helgi Ólafsson.
3. Sædís Hansen, f. 25. september 1946. Maður hennar Svein Raastad.
4. Vigdís Hansen, f. 24. september 1951. Maður hennar Matthías Nóason.
5. Ágústína Hansen, f. 30. desember 1954 í Eyjum. Maður hennar Jóhann Salómon Andrésson.
6. Sigríður Petra Hansen, f. 20. maí 1959. Maður hennar Magnús Kristleifur Kristleifsson.
7. Hans Hjálmar Hansen, f. 7. janúar 1961. Kona hans Sigurborg Birgisdóttir.

Sigríður var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann í leikskólanum á Sóla og í Rauðagerði.
Þau Magnús Kristleifur giftu sig 1976, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Sóleyjargötu 1, í Færeyjum í eitt ár, við Hásteinsveg 42, við Foldahraun, við Brekastíg 32, en búa nú í bústað í Grímsnesi.

I. Maður Sigríðar, (2. október 1976), er Magnús Kristleifur Kristleifsson, húsasmiður, f. 27. desember 1957.
Börn þeirra:
1. Magnús Kristleifur Magnússon, f. 8. maí 1976 í Eyjum.
2. Ingveldur Magnúsdóttir, f. 29. september 1982 í Eyjum.
3. Jón Jakob Magnússon, f. 20. september 1992.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Íslendingabók.
  • Magnús og Sigríður.
  • Valdaætt. Niðjatal Valda Ketilssonar bónda á Sauðhúsvöllum undir Eyjafjöllum og k.h. Katrínar Þórðardóttur. Magnea Árnadóttir. Handrit 1992.