Ester Hjálmarsdóttir (forstöðukona)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ester Hjálmarsdóttir.

Ester Hjálmarsdóttir frá Bjargi í Bakkafirði, húsfreyja, forstöðumaður fæddist þar 19. júní 1922 og lést 14. maí 2003.
Foreldrar hennar voru Hjálmar Friðriksson frá Grímsstöðum í Þistilfirði, f. þar 24. desember 1891, d. 20. mars 1964, og kona hans Sigríður Sigurðardóttir frá Hólmum í Reyðarfirði, húsfreyja, f. þar 21. september 1896, d. 4. maí 1993.

Ester varr með foreldrum sínum á Bjargi til 1940.
Þau Jógvan giftu sig 1941, eignuðust sjö börn. Þau bjuggu í fyrstu á Bakkafirði, en fluttu til Eyja haustið 1951, bjuggu í Langa Hvammi við Kirkjuveg 41, síðan við Breiðabliksveg 3.
Ester vann á leikskólanum Sóla og varð þar forstöðumaður.
Ester lést 2003 og Jógvan 2011.

I. Maður Esterar, (5. júní 1941), var Jógvan Hansen sjómaður, útgerðarmaður, f. 26. júní 1915 í Fuglafirði í Færeyjum, d. 17. september 2011.
Börn þeirra:
1. Ingólfur Hansen, f. 11. ágúst 1941. Kona hans María Björk Eiðsdóttir, látin.
2. Sonja Hansen, f. 25. janúar 1944. Maður hennar Þórður Helgi Ólafsson.
3. Sædís Hansen, f. 25. september 1946. Maður hennar Svein Raastad.
4. Vigdís Hansen, f. 24. september 1951. Maður hennar Matthías Nóason.
5. Ágústína Hansen, f. 30. desember 1954 í Eyjum. Maður hennar Jóhann Salómon Andrésson.
6. Sigríður Petrea Hansen, f. 20. maí 1959. Maður hennar Magnús Kristleifur Kristleifsson.
7. Hans Hjálmar Hansen, f. 7. janúar 1961. Kona hans Sigurborg Birgisdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.