Gylfi Tryggvason (flugvirki)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júní 2024 kl. 13:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júní 2024 kl. 13:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Gylfi Tryggvason''' flugvirki fæddist 23. september 1951 í Bifröst við Bárustíg 11.<br> Foreldrar hans Tryggvi Guðmundsson, frá Miðbæ við Faxastíg 18, kaupmaður, f. 1. október 1920, d. 1. júní 2004, og kona hans Svava Kristín Alexandersdóttir frá Landamótum, húsfreyja, f. þar 15. september 1929, d. 19. apríl 2020.<br> Börn Svövu og Tryggva:<br> 1. Gylfi...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Gylfi Tryggvason flugvirki fæddist 23. september 1951 í Bifröst við Bárustíg 11.
Foreldrar hans Tryggvi Guðmundsson, frá Miðbæ við Faxastíg 18, kaupmaður, f. 1. október 1920, d. 1. júní 2004, og kona hans Svava Kristín Alexandersdóttir frá Landamótum, húsfreyja, f. þar 15. september 1929, d. 19. apríl 2020.

Börn Svövu og Tryggva:
1. Gylfi Tryggvason, f. 23. september 1951. Kona hans Margrét Rósa Jóhannesdóttir.
2. Aldís Tryggvadóttir, f. 21. september 1953. Maður hennar Vilhjálmur Vilhjálmsson.
3. Guðmundur Ásvaldur Tryggvason, f. 19. júlí 1956. Barnsmóðir hans Lilja Richardsdóttir. Kona hans Auður Tryggvadóttir.
4. Sveinn Orri Tryggvason, f. 14. janúar 1963. Kona hans Steinunn Ósk Konráðsdóttir.
Fósturbarn Tryggva og Áslaugar móður hans:
5. Bylgja Áslaug Tryggvadóttir, f. 23. mars 1939. Maður hennar Ólafur Höskuldsson.

Gylfi lærði flugvirkjun og vann við hana í Luxemburg.
Þau Margrét Rósa giftu sig 1971, eignuðust þrjú börn.

I. Kona Gylfa, (23. janúar 1971), er Margrét Rósa Jóhannesdóttir frá Eyjum, húsfreyja, f. 23. mars 1948.
Börn þeirra:
1. Daði Jóhannes Gylfason, f. 26. nóvember 1974 í Eyjum.
2. Kári Tryggvi Gylfason, f. 31. maí 1977 í Eyjum.
3. Gylfi Már Gylfason, f. 6. september 1985 í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.