Brennihóll
Brennihóll
eða Brennuhóll eða Þerrihóll var hóll landnorður af Vilpu og austur af Austari Vilborgarstöðum. Var hann við Austurveginn norðanverðan, nær Vilborgarstöðum en Vallartúni.
Á honum var kynt bál („kyntur viti”), þegar póstur fór frá Eyjum til lands og menn áttu að vera viðbúnir í Sandi til að taka á móti bátnum. Við Bakka í Landeyjum var einnig kynt bál, er póstur fór til Eyja.
Af Þerrihólsnafninu má ætla, að þar hafi verið þurrkaður þvottur („breitt á blæ”).
Skýringar við mynd: Sér í austurhluta Austari Vilborgarstaða (Gústubæ). Til hægri er Brennihóll, (Þerrihóll). Fjær sér á Mylluhól.
Heimildir
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1973.