Hjörtur Ásgeir Ingólfsson (Lukku)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. apríl 2024 kl. 18:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. apríl 2024 kl. 18:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Hjörtur Ásgeir Ingólfsson''' vélvirki í Hafnarfirði fæddist 29. maí 1945 á Vestmannabraut 76.<br> Foreldrar hans voru Ingólfur Guðjónsson frá Skaftafelli, verkamaður, hænsnabóndi, garðyrkjubóndi, baðvörður, f. 25. júlí 1913, d. 23. janúar 1999, og kona hans Jóhanna Hjartardóttir frá Saurum í Laxárdal, Dalas., húsfreyja, f. 24. ágúst 1911, d....)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hjörtur Ásgeir Ingólfsson vélvirki í Hafnarfirði fæddist 29. maí 1945 á Vestmannabraut 76.
Foreldrar hans voru Ingólfur Guðjónsson frá Skaftafelli, verkamaður, hænsnabóndi, garðyrkjubóndi, baðvörður, f. 25. júlí 1913, d. 23. janúar 1999, og kona hans Jóhanna Hjartardóttir frá Saurum í Laxárdal, Dalas., húsfreyja, f. 24. ágúst 1911, d. 27. desember 1998.

Börn Jóhönnu og Ingólfs:
1. Hjörtur Ásgeir Ingólfsson vélvirki í Hafnarfirði, f. 29. maí 1945. Kona hans var Margrét Jónfríður Helgadóttir, látin.
2. Jóhannes Esra Ingólfsson plötu- og ketilsmiður, f. 7. október 1948, d. 23. júlí 2009. Fyrri kona hans er Bára Guðmundsdóttir. Síðari kona hans er Guðný Anna Tórshamar.

Hjörtur var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði vélvirkjun og vann við iðn sína.
Þau Margrét Jónfríður giftu sig, eignuðust þrjú börn.
Margrét lést 2017.

I. Kona Hjartar Ásgeirs var Margrét Jónfríður Helgadóttir húsfreyja, f. 16. desember 1945, d. 18. júní 2017. Foreldrar hennar voru Helgi Kristinn Halldórsson frá Ólafsfirði, sjómaður, f. 19. ágúst 1897, d. 27. janúar 1977, og síðari kona hans Guðfinna Jónsdóttir húsfreyja, f. 20. júní 1915, d. 12. nóvember 1986.
Börn þeirra:
1. Jóhanna Inga Hjartardóttir, f. 1. júlí 1966.
2. Jónas Friðrik Hjartarson, f. 28. október 1969.
3. Hjördís Ósk Hjartardóttir, f. 20. september 1978.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.