Jóhanna Njálsdóttir Andersen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. febrúar 2024 kl. 21:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. febrúar 2024 kl. 21:02 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Njálsdóttir Andersen húsfreyja, kennari fæddist 27. apríl 1953 að Hásteinsvegi 29.
Foreldrar hennar voru Njáll Andersen vélvirkjameistari, verkstjóri, f. 24. júní 1914 í Landlyst, d. 27. október 1999, og kona hans Halldóra Úlfarsdóttir frá Vattarnesi við Reyðarfjörð, húsfreyja, f. 2. október 1918, d. 20. ágúst 2000.

Börn Halldóru og Njáls:
1. María Jóhanna Njálsdóttir Andersen húsfreyja, kaupmaður, skólaliði, f. 11. febrúar 1940 á Sólbakka. Maður hennar var Kolbeinn Ólafsson.
2. Úlfar Njálsson Andersen, býr í Bandaríkjunum, vélvirki, f. 10.janúar 1943 á Hásteinsvegi 29. Fyrri kona hans var Guðfinna Ásta Kristinsdóttir. Síðari kona Úlfars er Halla Hafsteinsdóttir.
3. Harpa Njálsdóttir Andersen húsfreyja, félagsliði, f. 10. ágúst 1948 á Hásteinsvegi 29. Fyrri maður hennar var Ólafur Óskarsson, látinn. Síðari maður Hörpu er Atli Sigurðsson.
4. Jóhanna Njálsdóttir Andersen húsfreyja, kennari, f. 27. apríl 1953 að Hásteinsvegi 29. Maður hennar er Ragnar Óskarsson
5. Pétur Njálsson Andersen vélvirki, f. 1. janúar 1955 að Hásteinsvegi 29. Kona hans Andrea Berghildur Gunnarsdóttir.
6. Theodór Friðrik Njálsson Andersen viðskiptafræðingur, bankastarfsmaður í Finnlandi, f. 3. mars 1960 að Hásteinsvegi 29. Kona hans er Siv Schalin.

Jóhanna var með foreldrum sínum.
Hún varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1970, lauk stúdentsprófi í Framhaldsskólanum í Eyjum 1989, lauk prófum í Kennaraháskóla Íslands í fjarnámi 1996, lauk námi skólabókasafnsfræði í Kaupmannahöfn 1997.
Jóhanna var kennari í grunnskólum Vestmannaeyja 1989-2018.
Þau Ragnar giftu sig 1971, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Hrauntúni 22.

I. Maður Jóhönnu, (3. júlí 1971), er Ragnar Óskarsson kennari, f. 17. janúar 1948.
Börn þeirra:
1. Óskar Ragnarsson læknir, með doktorspróf í innkirtlafræði, býr í Gautaborg, f. 18. janúar 1972. Fyrri kona hans Rebekka Atladóttir. Síðari kona hans Rut Óskarsdóttur.
2. Guðbjörg Vallý Ragnarsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 27. maí 1978. Barnsfaðir hennar Ómar Örn Magnússon Guðmundssonar. Barnsfaðir hennar Þorvaldur Guðmundsson.
3. Njáll Ragnarsson stjórnmálafræðingur, sérfræðingur á Fiskistofu, f. 27. febrúar 1984. Fyrri kona hans Matthildur Halldórsdóttir. Síðari kona hans Lindu Sigurlásdóttur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.