Ásta Kristinsdóttir (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ásta Guðfinna Kristinsdóttir húsfreyja fæddist 18. september 1945.
Foreldrar hennar voru Gísli Kristinn Aðalsteinsson bóndi, verkamaður, f. 31. desember 1903 í Efra-Haganesi í Haganesvík, Skagaf., d. 13. júní 1963, og kona hans Guðbjörg Sigríður Einarsdóttir frá Norðurgarði húsfreyja, f. þar 21. desember 1905, d. 12. ágúst 1972.

Börn Guðbjargar og Kristins:
1. Ástrós Eyja Kristinsdóttir, f. 4. nóvember 1933 í Norðurgarði, d. 31. mars 2012.
2. Sigurgeir Sigurður Kristinsson, f. 6. desember 1935 í Norðurgarði, d. 18. febrúar 2016.
3. Guðbjartur Kristinn Kristinsson, f. 12. apríl 1937 í Norðurgarði, d. 3. maí 2015.
4. Guðbrandína Sveinsína Kristinsdóttir, f. 19. júlí 1938 í Norðurgarði.
5. Alfreð Kristinsson, f. 29. nóvember 1939 í Norðurgarði, d. 10. september 1974.
6. Árný Ingiríður Kristinsdóttir, f. 20. desember 1940 í Norðurgarði.
7. Ásta Guðfinna Kristinsdóttir, f. 18. september 1945 í Norðurgarði.
Fósturbarn hjónanna var
8. Ásta Margrét Sigurðardóttir húsfreyja, ræstitæknir í Reykjavík, f. 26. september 1924 á Seljalandi, d. 19. nóvember 1995.

Þau Úlfar giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau skildu.
Þau Haukur giftu sig, eignuðust ekki börn saman. Þau bjuggu í Kópavogi.

I. Fyrrum maður Ástu Guðfinnu er Úlfar Njálsson Andersen vélvirki, rennismiður, f. 10. janúar 1943.
Börn þeirra:
1. Smári Úlfarsson rennismiður, f. 22. mars 1963.
2. Rósmarý Úlfarsdóttir húsfreyja, f. 20. júlí 1965.

II. Maður Ástu Guðfinnu var Haukur Sævar Halldórsson skipverji, lyftaramaður hjá Eimskip, f. 21. mars 1952, d. 5. maí 2024. Foreldrar hans Björg Áróra Hallgrímsdóttir, f. 5. september 1921, d. 18. júlí 2001, og Halldór Dagbjartsson, f. 4. nóvember 1911, d. 31. desember 1986.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.