Pétur Njálsson Andersen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Pétur Njálsson Andersen, vélvirki fæddist 1. janúar 1955.
Foreldrar hans voru Njáll Andersen vélvirkjameistari, verkstjóri, f. 24. júní 1914 í Landlyst, d. 27. október 1999, og kona hans Halldóra Úlfarsdóttir frá Vattarnesi við Reyðarfjörð, húsfreyja, f. 2. október 1918, d. 20. ágúst 2000.

Börn Halldóru og Njáls:
1. María Jóhanna Njálsdóttir Andersen húsfreyja, kaupmaður, skólaliði, f. 11. febrúar 1940 á Sólbakka. Maður hennar var Kolbeinn Ólafsson.
2. Úlfar Njálsson Andersen vélvirki, f. 10.janúar 1943 á Hásteinsvegi 29. Fyrri kona hans var Guðfinna Ásta Kristinsdóttir. Síðari kona Úlfars er Halla Hafsteinsdóttir.
3. Harpa Njálsdóttir Andersen húsfreyja, skólaliði, f. 10. ágúst 1948 á Hásteinsvegi 29. Fyrri maður hennar var Ólafur Óskarsson, látinn. Síðari maður Hörpu er Atli Sigurðsson.
4. Jóhanna Njálsdóttir Andersen húsfreyja, kennari, f. 27. apríl 1953 að Hásteinsvegi 29. Maður hennar er Ragnar Óskarsson
5. Pétur Njálsson Andersen vélvirki, f. 1. janúar 1955 að Hásteinsvegi 29. Kona hans Andrea Berghildur Gunnarsdóttir.
6. Theodór Friðrik Njálsson Andersen viðskiptafræðingur, bankastarfsmaður í Finnlandi, f. 3. mars 1960 að Hásteinsvegi 29. Kona hans er Siv Schalin.

Þau Andrea Berghildur giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Rvk.

I. Kona Péturs er Andrea Berghildur Gunnarsdóttir, húsfreyja, f. 5. nóvember 1956. Foreldrar hennar Ragnar Gunnar Hjelm, f. 23. ágúst 1930, d. 12. desember 1990, og Valgerður Viktoría Valdimarsdóttir, f. 8. júlí 1937, d. 3. nóvember 2006.
Börn þeirra:
1. Valgeir Pétursson, f. 30. maí 1973.
2. Njáll Andersen, f. 10. desember 1979.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.