Þorkell Rúnar Sigurjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. nóvember 2023 kl. 14:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. nóvember 2023 kl. 14:22 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þorkell Rúnar Sigurjónsson''' verslunarmaður, húsasmíðameistari fæddist 28. október 1942 í Ártúni við Vesturveg 20 og lést 20. janúar 2017.<br> Foreldrar hans voru Sigurjón Sigurðsson vélstjóri, bifreiðastjóri, f. 7. desember 1909, d. 9. ágúst 1997, og kona hans Guðrún ''Anna'' Þorkelsdóttir húsfreyja, f. 14. nóvember 1912, d. 25. janúar 1996. Börn Ön...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þorkell Rúnar Sigurjónsson verslunarmaður, húsasmíðameistari fæddist 28. október 1942 í Ártúni við Vesturveg 20 og lést 20. janúar 2017.
Foreldrar hans voru Sigurjón Sigurðsson vélstjóri, bifreiðastjóri, f. 7. desember 1909, d. 9. ágúst 1997, og kona hans Guðrún Anna Þorkelsdóttir húsfreyja, f. 14. nóvember 1912, d. 25. janúar 1996.

Börn Önnu og Sigurjóns:
1. Ögmundur Viktor Sigurjónson lyftaramaður í Fiskimjölsverksmiðjunni, f. 28. nóvember 1935 á Jaðri við Vestmannabraut 6.
2. Þorkell Rúnar Sigurjónsson, f. 15. september 1940 í Ártúni við Vesturveg 20, d. 27. september 1940.
3. Þorkell Rúnar Sigurjónsson húsasmíðameistari, f. 28. október 1942 í Ártúni við Vesturveg 20, d. 20. janúar 2017.
4. Sigríður Þóranna Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 25. júlí 1944 í Ártúni við Vesturveg 20, d. 13. nóvember 1964.
Fóstursonur þeirra var sonur Þórönnu og Björns Karlssonar læknis:
5. Karl Björnsson læknir, f. 30. september 1962 á Vallargötu 18.

Þorkell var með foreldrum sínum í æsku.
Hann varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum í Eyjum 1959.
Þorkell vann verslunarstörf, lærði síðan húsasmíði og varð meistari í greininni.
Þau Elísabet hófu sambúð 1964, giftu sig 2004, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Strembugötu 16, Hásteinsveg 7, síðar við Kirkjuveg 82.
Elínborg lést 2008 og Þorkell Rúnar 2017.

I. Kona Þorkels, (10. júlí 2004 eftir 40 ára sambúð), var Elísabet Ólafsdóttir verkakona, húsfreyja, f. 15. apríl 1945, d. 2. júní 2008.
Börn þeirra:
1. Sigríður Þóranna Þorkelsdóttir, f. 11. júní 1965.
2. Sigurjón Þorkelsson, f. 9. apríl 1967.
3. Ólafur Helgi Þorkelsson, f. 19. desember 1980.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.