Halldór Bjarni Árnason (flugstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. ágúst 2022 kl. 17:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. ágúst 2022 kl. 17:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Halldór Bjarni Árnason (flugstjóri)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Halldór Bjarni Árnason.

Halldór Bjarni Árnason frá Skála (Litla Hlaðbæ) við Austurveg 30, rafvirkjameistari, flugstjóri fæddist 12. janúar 1945 í Hlaðbæ.
Foreldrar hans voru Árni Sigurjónsson sjómaður, vélstjóri, skipstjóri, olíuafgreiðslumaður, f. 12. nóvember 1903 á Fit u. Eyjafjöllum, d. 16. júlí 1971 í Eyjum, og kona hans Sigríður Auðunsdóttir frá Hlaðbæ, húsfreyja, verkakona, f. 30. júní 1912 að Efra-Hóli u. Eyjafjöllum, d. 21. mars 1989.

Halldór Bjarni var með foreldrum sínum í æsku, í Hlaðbæ og Skála.
Hann varð þriðja bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1961, lærði rafvirkjun hjá Finnboga Árnasyni og í Iðnskólanum í Eyjum, varð sveinn 1966, öðlaðist meistararéttindi 1969 og löggildingu 1970.
Halldór Bjarni fékk einkaflugmannsréttindi 1968, atvinnuflugmannsréttindi 1969.
Hann vann hjá Kjarna sf., Vinnslustöðinni, Fiskimjölsverksmiðjunni (FIVE), Viðlagasjóði eftir Gos 1973, Rafiðjunni hf. og Bræðrunum Ormsson hf.
Halldór Bjarni var flugmaður og flugstjóri hjá nokkrum flugfélögum, m.a. hjá Eyjaflugi Bjarna Jónassonar, Flugleiðum í Eyjum, Vængjum, Örnum, Íscargo, Leiguflugi Sverris Þóroddssonar, Arnarflugi, Íslandsflugi og Landsflugi.
Þau Oddný giftu sig, bjuggu saman frá 1988, giftu sig 1994, eignuðust ekki börn saman, en Oddný á tvö börn frá fyrra hjónabandi sínu. Þau bjuggu í fyrstu á Smáravöllum í Kópavogi, en búa síðan á Hnotubergi í Hafnarfirði.

I. Kona Halldórs Bjarna, (25. nóvember 1994), er Oddný Ögmundsdóttir frá Landakoti við Strandveg 51, nú við Miðstræti 26, húsfreyja, bókhaldari, f. 8. júní 1944.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Halldór Bjarni.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.