Baldvin G. Sigurbjörnsson (skipstjóri)
Baldvin Gunnlaugur Sigurbjörnsson frá Sauðaneskoti í Svarfaðardal, skipstjóri, vélstjóri fæddist þar 9. júlí 1906 og lést 2. maí 1970 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Sigurbjörn Friðriksson sjómaður á Ólafsfirði, f. 20. ágúst 1873 í Brekkukoti í Tjarnarsókn í Svarfaðardal, d. 14. janúar 1946, og kona hans Lilja Friðfinnsdóttir húsfreyja, f. 10. maí 1880 í Sauðanesi í Upsasókn í Svarfaðardal, d. 19. apríl 1971.
Baldvin var með foreldrum sínum í æsku, á Ólafsfirði og á Þingvöllum á Akureyri.
Hann lauk vélstjóraprófi á Akureyri 1925, hinu minna fiskimannaprófi á Akureyri 1930, fiskimannaprófi í Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1946.
Baldvin var ungur sjómaður við Norðurland, fór síðan á vertíð til Vestmannaeyja og var 5 vertíðir á mb. Kára, Glað og Ófeigi.
Hann var skipstjóri í 32 ár á ýmsum fiskiskipum frá Ólafsfirði og Akureyri, var þekktur aflamaður á síldveiðum, var m.a. með mb. Bris á síldveiðum 1944 og landaði um 16 þúsund málum og tunnum það sumar. Hann var einnig með báta frá Eyjum, m.a. Þorgeir goða. Síðari árin var hann vélstjóri á togurum.
Þau Snjólaug giftu sig 1931, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu lengst við Munkaþverárstræti á Akureyri, en fluttu 1954 til Reykjavíkur og síðan til Hafnrfjarðar.
Þau Baldvin fluttu til Eyja 1969. Hann lést 1970.
Snjólaug bjó við Birkihlíð 7, síðar í Hraunbúðum. Hún lést 2000.
I. Kona Baldvins, (19. desember 1931), var Snjólaug Hlíf Baldvinsdóttir frá Stóra-Eyrarlandi á Akureyri, húsfreyja, f. 21. nóvember 1912, d. 3. maí 2000 í Eyjum.
Börn þeirra:
1´Erla Kristín Lilja Baldvinsdóttir húsfreyja, f. 30. október 1931. Fyrrum maður hennar Kristján Gíslason.
2. Unnur Gígja Baldvinsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, hjúkrunarforstjóri, deildarstjóri, f. 22. mars 1933. Maður hennar Magnús Bjarnason verkstjóri, sérhæfður starfsmaður fiskiðjuvera, f. 5. júlí 1934, d. 21. nóvember 2019.
3. Guðbjörn Gísli Baldvinsson, f. 30. maí 1937, d. 31. ágúst 1976. Kona hans Guðbjörg Þorgeirsdóttir.
4. Baldvin Sigurbjörn Baldvinsson, f. 24. júní 1947. Kona hans Anna Sigurlaug Scheving Sigurjónsdóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Morgunblaðið 23. maí 2000. Minning Snjólaugar.
- Prestþjónustubækur.
- Sjómannadagsblað Vestmannaeyja.
- Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.