Magnús Bjarni Magnússon
Magnús Bjarni Magnússon frá Unaðsdal á Snæfjallaströnd, N._Ís., fiskverkamaður, lifrarbræðslumaður, bóndi, söðlasmiður fæddist þar 8. október 1875, varð úti 13. janúar 1928.
Foreldrar hans voru Magnús Brandsson frá Brandshúsi, f. 5. júlí 1832 á Reyðarvatni, Rang., d. 1884, og kona hans María Jónsdóttir frá Bæjum á Snæfjallaströnd, N.-Ís., húsfreyja, f. 7. október 1852, d. 9. janúar 1914.
Magnús var 4 ára niðursetningur í Bolholti á Rangárvöllum 1880, vann fyrir sér á Vestari-Kirkjubæ þar 1890, ókvæntur leigjandi þar 1901.
Hann kom til Eyja úr Reykjavík 1909, fiskverkandi í Eyjum 1910, lifrarbræðslumaður 1920, bjó í Fagurhól í Eyjum 1920 með Ragnhildi konu sinni og barninu Unni Maríu 5 ára.
Magnús Bjarni og Ragnhildur fluttu með Unni Maríu úr Eyjum 1921. Hann var bóndi á Giljum í Hvolhreppi 1921 og 1923, söðlasmiður á Stórólfshvoli þar 1924, á Efra-Hvoli þar 1925, á Moshvoli þar 1926 og 1927.
Þau Ragnhildur giftu sig 1906, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu í Brautarholti í Eyjum 1910, í Lambhaga 1915, í Fagurhól 1920.
Magnús Bjarni varð úti í hríð nærri Kirkjubæ á Rangárvöllum 13. janúar 1928.
Ragnhildur lést 1956.
I. Kona Magnúsar Bjarna, (1906), var Ragnhildur Árnadóttir frá Moldnúpi u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. þar 14. september 1877, d. 9. nóvember 1956.
Barn þeirra:
1. Unnur María Magnúsdóttir, f. 13. mars 1915 í Lambhaga, d. 28. desember 1996. Maður hennar Karl Daníel Pétursson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.