Ragnhildur Árnadóttir (Moldnúpi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ragnhildur Árnadóttir frá Moldnúpi u. Eyjafjöllum fæddist þar 14. september 1877 og lést 9. nóvember 1956.
Foreldrar hennar voru Árni Lafransson bóndi, f. 4. desember 1829, d. 4. nóvember 1878 og kona hans Gróa Árnadóttir húsfreyja, f. 1826, d. 23. maí 1910.

Ragnhildur var niðursetningur á Lambhúshól u. Eyjafjöllum 1880, á sveit þar 1890, hjú á Brekkum í Fljótshlíð 1901.
Þau Magnús Bjarni giftu sig 1906, eignuðust eitt barn. Ragnhildur kom úr Reykjavík til Eyja með Magnúsi Bjarna 1909. Þau bjuggu í Brautarholti í Eyjum 1910, í Lambhaga 1915, í Fagurhól 1920.
Þau fluttu með Unni Maríu úr Eyjum 1921, voru bændur á Giljum í Hvolhreppi 1921 og 1923, voru hjón á Stórólfshvoli þar 1924, á Efra-Hvoli þar 1925. Þau byggðu húsið Sunnuhvol í landi Moshvols og bjuggu þar 1926 og 1927.
Magnús Bjarni lést 1928.
Ragnhildur vann hjúkrunarkvennastörf á Stórólfshvoli 1930.
Ragnhildur lést 1956.

I. Maður Ragnhildar, (1906), var Magnús Bjarni Magnússon frá Unaðsdal á Snæfjallaströnd, fiskverkamaður, lýsisbræðslumaður, bóndi, söðlasmiður, f. 8. október 1875, d. 13. janúar 1928.
Barn þeirra:
1. Unnur María Magnúsdóttir, f. 13. mars 1915 í Lambhaga, d. 28. desember 1996. Maður hennar Karl Daníel Pétursson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestfirzkar ættir. Arnardalsætt – Eyrardalsætt. Ari Gíslason og V.B. Valdimarsson. V.B. Valdimarsson 1959-1968.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.