Unnur María Magnúsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Unnur María Magnúsdóttir vinnukona, húsfreyja fæddist 13. mars 1915 í Lambhaga og lést 28. desember 1996.
Foreldrar hennar voru Magnús Bjarni Magnússon Brandssonar frá Unaðsdal á Snæfjallaströnd, fiskverkamaður, lýsisbræðslumaður, bóndi, söðlasmiður, f. 8. október 1875, d. 13. janúar 1928, og kona hans Ragnhildur Árnadóttir frá Moldnúpi u. Eyjafjöllum f. 14. september 1877, d. 9. nóvember 1956.

Unnur María var eina barn foreldra sinna. Hún var með þeim í Lambhaga 1915 og Fagurhól 1920.
Hún flutti með þeim úr Eyjum 1921, var með þeim á Giljum, Stórólfshvoli, Efra-Hvoli og Moshvoli í Hvolhreppi og á Sunnuhvoli þar.
Faðir hennar lést 1928, er Unnur María var á þrettánda ári sínu.
Hún var vinnukona á Efra-Hvoli í Hvolhreppi 1930, síðar bjó hún í Reykjavík, vann um skeið hjá Sanitas.
Hún nam við Húsmæðraskólann á Hallormsstað.
Þau Karl Daníel giftu sig 1943, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Vatnagörðum, á ,,Kallabraut“ í Kópavogi, fluttu til Grindavíkur, bjuggu þar í 3-4 ár. Eftir flutning aftur til Reykjavíkur bjuggu þau við Spítalastíg 7, en síðast á Grýtubakka 12 í Breiðholti í 10 ár.
Karl Daníel lést 1979 og Unnur María 1996.

I. Maður Unnar Maríu, (18. september 1943), var Karl Daníel Pétursson frá Eydölum í Breiðdal, S.-Múl., járnsmiður, vélstjóri, stöðvarstjóri hjá olíufélaginu Nafta, f. 4. ágúst 1909, d. 8. mars 1979. Foreldrar hans voru Pétur Þorsteinsson prestur, f. 3. ágúst 1873, d. 11. mars 1919, og kona hans Hlíf Bogadóttir Smith húsfreyja, f. 2. júlí 1877, d. 5. apríl 1942.
Börn þeirra:
1. Guðríður Kolbrún Karlsdóttir verslunarskólagengin, skrifstofukona, f. 12. mars 1944. Hún var ættleidd dóttir þeirra.
2. Magnús Pétur Karlsson vélvirkjameistari, vélfræðingur, framhaldsskólakennari, f. 29. nóvember 1947 í Vatnagörðum. Hann stofnaði ásamt öðrum iðnaðarfyrirtækið Bergplast og rak það í Kópavogi, Reykjavík og Hafnarfirði. Barnsmóðir hans Guðlaug Jónsdóttir. Kona hans Guðríður Magnúsdóttir.
3. Ragnhildur Anna Karlsdóttir húsfreyja, f. 26. júní 1952. Maður hennar Þorvaldur Rúnar Jónasson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Pétur.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 5. janúar 1997. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.