Grænahlíð 12
Hús Lárus Sævars Sæmundssonar og Sigríðar Sigurbjörnsdóttur Sólhlíð.
Lóðarleigusamningur var undirritaður 1. júní 1959.
Óskar Bjarnason og Sigurrós Ottósdóttir Austurvegi 18 byrjuðu að byggja þetta hús í Laufástúninu 1958.
Sævar og Sigga keyptu það tæplega fokhelt haustið 1960 og héldu byggingunni áfram.
Fluttu inn í nóvember 1963 með dótturina Sigrúnu sem var fædd 9. febrúar 1960.
Húsið fór undir hraun í gosinu 1973
Heimildir
- Friðrik Ásmundsson, Grænahlíð, samantekt unnin 2002.