Búastaðabraut 1

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. ágúst 2017 kl. 14:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. ágúst 2017 kl. 14:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Búastaðabraut 1, þegar húsið var grafið upp eftir gos.

Eftirfarandi leiðrétting byggir á skýrslu frá Sigurlaugi Þorsteinssyni.
Foreldrar Sigurlaugs þau Þorsteinn Gunnarsson vélstjóri (Steini á Horninu) og kona hans Pálína Sigþrúður Einarsdóttir Höjgaard húsfreyja hófu byggingu hússins 1955 og var það rúmlega fokhelt, er Þorsteinn lést af slysförum 24. maí 1958.
Pálína og Kaj Erik Nielsen, síðari maður hennar, luku byggingunni og bjuggu þar í nokkur ár.
Guðni Pálsson frá Þingholti og Ágústa Guðmundsdóttir kona hans keyptu húsið rétt fyrir áramótin 1963.

Síðan: Þau Guðni og Ágústa bjuggu þar ásamt börnum sínum Hlöðveri Sigurgeiri, Ólafi Óskari, Viktori Friðþjófi og Sigríði Ágústu fram að gosi árið 1973.
Eftir gos bjó þar Hlöðver Sigurgeir Guðnason.
Árið 2007 bjuggu þar Kristleifur Guðmundsson og Berglind Jóhannsdóttir.



Heimildir