Marhnútur
Fiskar |
---|
Önnur sjávardýr |
Marhnútur (Myoxocephalus scorpius)
Stærð: Marhnútar eru heldur litlir, 20-25 cm. Getur orðið allt að 60 cm í Norðurhöfum.
Lýsing: Gráðugir en sljóir botnfiskar með stórt höfuð. Marhnútar eru hreisturslausir með sívalan bol, stórt flatvaxið höfuð og stóran kjaft. Sumir eru þaktir húðplötum eða göddum. Marhnútar hafa tvo bakugga og er raufarugginn eins og spegilmynd aftari bakuggans. Eyruggar eru mjög stórir og líkjast vængjum. Þeir eru fremur ljótir, framdigrir og afturmjóir. Litur er breytilegur eftiraldri og kyni en oftast er hann móleitur. Sundmaga vantar.
Heimkynni: Finnst aðeins á norðurhveli jarðar.
Lífshættir: Þeir lifa í grýttum þangbotni undir fjörumáli og flækist mikið inn í hafnir og við skolpræsi.
Fæða: Hann er gráðug alæta en blóðlatur, borðar aðallega ýmisskonar krabbadýr og smáfiska. Étur hrogn og seiði annarra fiska og gerir með því nokkurn skaða.
Hrygning: Hrygnir allt í kringum landið. Marhnúturinn hrygnir vanalega um hávetur, þá í hlýja sjónum og mjög grunnt, jafnvel uppi í fjörum. Og á vorin í kalda sjónum. Eggin eru smá og rauðgul á lit, eggin eru 2-2,5 mm, festist saman í allstóra kekki sem festast vð botninn.
Nytsemi: Telja flestir hann óætan en það er ekki rétt, því hann er bragðgóður en ekki matarmikill. Sagt er að gott sé að sjóða fiskisúpu af honum. Grænlendingar eru einir af fáum sem borða hann.