Magnús Magnússon (Túnsbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. febrúar 2016 kl. 11:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. febrúar 2016 kl. 11:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Magnús Magnússon''' bóndi, síðan lausamaður á Túnsbergi fæddist 12. september 1869 í Oddakoti í A-Landeyjum og lést 18. maí 1961 í Reykjavík.<br> Foreldrar hans ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Magnússon bóndi, síðan lausamaður á Túnsbergi fæddist 12. september 1869 í Oddakoti í A-Landeyjum og lést 18. maí 1961 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Magnús Þórðarson bóndi, bátasmiður og formaður í Oddakoti, f. 29. september 1832, d. 5. janúar 1921, og kona hans Ingibjörg Magnúsdóttir húsfreyja, f. 26. mars 1829, d. 17. október 1909.

Systur Magnúsar í Eyjum voru:
1. Ingibjörg Magnúsdóttir verkakona og eigandi að Hjálmholti 1930, f. 19. nóvember 1874, d. 11. apríl 1958 í Reykjavík.
2. Þuríður Magnúsdóttir verkakona, bústýra á Litlu-Eyri, f. 10. mars 1873, d. 17. maí 1927.

Magnús var með foreldrum sínum í Oddakoti í æsku, vinnumaður hjá þeim á Kirkjulandi 1890, á Voðmúlastöðum 1901.
Hann var bóndi í Efri-Úlfsstaðahjáleigu (Sléttubóli) 1906-1908.
Magnús var síðan í lausamennsku, vinnumaður á Kálfsstöðum í V-Landeyjum 1910. Hann fluttist til Eyja 1920 og bjó á Túnsbergi, en leitaði í Landeyjar á sumrin.
Síðustu ár sín bjó hann í Hveragerði. Hann lést í Reykjavík 1961.
Hann var ókvæntur.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.