Ingibjörg Magnúsdóttir (Hjálmholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ingibjörg Magnúsdóttir húsfreyja, verkakona fæddist 19. nóvember 1874 í Oddakoti í A-Landeyjum og lést 11. apríl 1958 í Reykjavík.
Faðir hennar var Magnús bóndi, bátasmiður og formaður í Oddakoti 1859-1886, á Kirkjulandi þar 1886-1897 og Voðmúlastöðum þar 1897-1909, f. 29. september 1832 á Efri-Úlfsstöðum þar, d. 5. janúar 1921 á Efri-Úlfsstöðum, Þórðarson bónda á Efri-Úlfsstöðum, f. 26. mars 1802 á Kotvelli í Hvolhreppi, d. 9. nóvember 1870 á Efri-Úlfsstöðum, Þórarinssonar bónda á Kotvelli, skírður 17. apríl 1771, d. 21. júlí 1846, Jónssonar, og konu Þórarins Jónssonar, Vigdísar húsfreyju, skírð 12. september 1770, d. 26. júní 1854, Eiríksdóttur.
Móðir Magnúsar í Oddakoti og kona Þórðar á Efri-Úlfsstöðum var Bjarghildur húsfreyja, f. 31. maí 1797 á Kirkjulæk í Fljótshlíð, d. 5. janúar 1883 á Efri-Úlfsstöðum, Jónsdóttir bónda í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð, f. 1760, d. 6. mars 1836, og konu Jóns, Guðbjargar húsfreyju, f. 1770, d. 12. desember 1847, Jónsdóttur.

Móðir Ingibjargar og kona Magnúsar í Oddakoti var Ingibjörg húsfreyja, f. 26. mars 1829, d. 17. október 1909, Magnúsdóttir bónda og formanns í Syðri-Vatnahjáleigu í A-Landeyjum og víðar, f. 20. september 1805 í Hemlu í V-Landeyjum, d. 10. júní 1862 á Kálfsstöðum þar, Guðlaugssonar bónda og hreppstjóra á Búðarhóli í A-Landeyjum, f. 1759 á Kirkjulandi í A-Landeyjum, d. 25. mars 1818, Bergþórssonar, og seinni konu Guðlaugs, (6. nóvember 1803), Margrétar húsfreyju, f. 1775, d. 2. janúar 1863 í Hemlu, Árnadóttur.
Móðir Ingibjargar í Oddakoti og kona Magnúsar var Þuríður húsfreyja, skírð 16. mars 1801, d. 7. nóvember 1888, Ólafsdóttir bónda á Kirkjulandi, f. 1734, d. 1801, Ólafssonar, og seinni konu Ólafs á Kirkjulandi, (2. júlí 1796), Guðrúnar húsfreyju, f. 1767, Diðriksdóttur.

Systkini Ingibjargar í Eyjum voru:
1. Magnús Magnússon verkamaður á Túnsbergi, f. 12. september 1869, d. 18. maí 1961.
2. Þuríður Magnúsdóttir verkakona, bústýra á Litlu-Eyri, f. 10. mars 1873, d. 17. maí 1927.

Ingibjörg var með foreldrum sínum í Oddakoti 1880, á Kirkjulandi 1890.
Hún var bóndi í Efri Úlfsstaðahjáleigu (Sléttubóli) í A-Landeyjum 1909-1921, ógift, en hjá henni var ráðsmaður Guðmundur Pálsson áður bóndi á Hólmi.
Ingibjörg brá búi þar og fluttist til Eyja með Guðmundi Pálssyni 1921, en hann lést á árinu. Hún var húsfreyja í Hjálmholti 1922 og enn 1930, skráð eigandi.
Hún fluttist til Eyrarbakka þar sem hún var ráðskona um skeið, fluttist síðan til Reykjavíkur.
Ingibjörg lést 1958.

Ingibjörg var ógift. Hún hélt ráðsmann á Sléttubóli, Guðmund Pálsson fyrrum bónda á Hólmi í A-Landeyjum, f. 20. október 1847 á Skeiði í Hvolhreppi, d. 8. ágúst 1921. Hann var ekkill og ráðsmaður hjá Ingibjörgu 1909-1921 og fluttist með henni til Eyja, en lést á því ári.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.