Kristín Magnúsdóttir (Hlaðbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 13:40 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 13:40 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Magnúsdóttir húsfreyja í Vallnatúni u. Eyjafjöllum fæddist 12. febrúar 1887 og lést 7. ágúst 1975.
Foreldrar hennar voru Magnús Magnússon bóndi í Norðurhjáleigu, (nú Lækjarhvammur), í A-Landeyjum, f. 18. apríl 1845, d. 10. júní 1910, og önnur kona hans Jóhanna Magnúsdóttir húsfreyja, f. 11. september 1858, d. 23. maí 1888.

Hálfsystkini Kristínar, (samfeðra), í Eyjum voru:
1. Guðrún Magnúsdóttir verkakona á Svalbarði, f. 5. júní 1874, d. 13. nóvember 1948, ógift.
2. Magnús Magnússon trésmiður og garðyrkjumaður í Bergholti, á Lyngbergi og síðast í Hljómskálanum, f. 4. febrúar 1881, d. 30. apríl 1974. Kona hans var Sigríður Hróbjartsdóttir húsfreyja.
3. Guðný Magnúsdóttir húsfreyja í Vatnsdal, f. 17. júlí 1882, d. 4. júlí 1966, síðari kona Högna Sigurðssonar.

Móðir Kristínar lést, er Kristín var á öðru ári. Hún var komin í fóstur til Kristínar Björnsdóttur og Jóns Einarssonar í Ysta-Skála 1890, þriggja ára, sögð tökubarn.
Hún var síðan fósturbarn hjá hjónunum og fluttist til Eyja með þeim. Þar var hún hjú í Hlaðbæ 1910.
Kristín giftist að Vallnatúni Tómasi Þórðarsyni bónda, f. 17. janúar 1886, d. 17. nóvember 1976. Hann stundaði sjóróðra í Eyjum og var annar tveggja, sem komust af í Haffaraslysinu 9. apríl 1916.

I. Maður Kristínar, (21. júní 1919), var Tómas Þórðarson bóndi í Vallnatúni.
Börn þeirra:
1. Kristinn Tómasson ketil- og plötusmiður í Stálsmiðjunni í Reykjavík, f. 11. maí 1920.
2. Þórður Tómasson safnvörður og menningarfrömuður í Skógum, f. 28. apríl 1921.
3. Þóra Tómasdóttir starfsmaður á Landspítala um árabil, f. 13. júlí 1923.
4. Guðrún Tómasdóttir húsfreyja í Skógum, f. 13. apríl 1931.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Þórður Tómasson.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.