Guðrún Magnúsdóttir (Svalbarði)
Fara í flakk
Fara í leit
Guðrún Magnúsdóttir frá Lækjarhvammi í A.-Landeyjum, verkakona fæddist 5. júní 1874 og lést 13. nóvember 1948.
Foreldrar hennar voru Magnús Magnússon frá Norður-Búðarhólshjáleigu í A.-Landeyjum, bóndi, f. 18. apríl 1845, d. 10. júní 1910, og fyrsta kona hans Jórunn Sigurðardóttir frá Búðarhóls-Austurhjáleigu í A.-Landeyjum, húsfreyja, f. 18. júní 1850, d. 30. júlí 1882.
Guðrún var vinnukona á Ljótarstöðum í A.-Landeyjum 1901, kom þaðan til Gjábakka í Eyjum 1910, vann þar við fiskverkun og í heyvinnu, var hjú á Svalbarði 1920, verkakona þar 1930, lausakona þar 1945.
Guðrún lést 1948, ógift og barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.