Ingibjörg Þórðardóttir (Vilborgarstöðum)
Ingibjörg Þórðardóttir vinnukona frá Vilborgarstöðum fæddist 1844 og lést 1. mars 1890.
Foreldrar hennar voru Þórður Einarsson bóndi og kona hans Ástríður Jónsdóttir húsfreyja.
Ingibjörg var sýstir Guðrúnar Þórðardóttur húsfreyju í Vegg og Gróu Þórðardóttur húsfreyju í Hólshúsi.
Ingibjörg var með foreldrum sínum á Löndum 1850, á Vilborgarstöðum 1855. Hún var með ekkjunni móður sinni og systrum sínum Gróu og Guðrúnu þar 1860.
Hún var vinnukona á Vilborgarstöðum 1870 hjá Jóhönnu Gunnsteinsdóttur og Jóni Jónssyni , síðar búandi í Dölum.
Þá var hún vinnukona í Gvendarhúsi hjá Jóni og Sesselju 1880.
Ingibjörg lést 1890.
Hún var ógift og barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.